Forsíða / Um vefinn
Um vefinn
Vefurinn er í umsjón Sigurðar Hólm Gunnarssonar. Hér geturðu lesið um bakgrunn hans, efni vefsins og heimildaval.
Á þessari síðu
Efnisyfirlit
Um vefinn og ritstjóra
Markmið þessa vefs er að auðvelda fólki að finna upplýsingar á íslensku um hugvíkkandi efni. Hér er leitast við að gera skýran greinarmun á því sem við vitum, því sem enn er óvíst og því sem þarfnast frekari rannsókna. Jafnframt er bent á heimildir fyrir þau sem vilja lesa meira.
Mikil áhersla er lögð á fordómalausa fræðslu og skaðaminnkun. Með skaðaminnkun á ég við að veita fólki upplýsingar og stuðning sem geta dregið úr hættu á skaða, hvort sem það ákveður að nota þessi efni eða ekki. Þar skiptir máli að fjalla af hreinskilni um áhættu, aðstæður og stuðning og auðvelda fólki að leita sér hjálpar án þess að mæta fordæmingu.
Fræðsla um áhættu er ekki hvatning til neyslu. Fólk þarf að hafa aðgang að upplýsingum til að geta tekið upplýstar ákvarðanir.
Áhugi minn á þessum efnum á sér bæði persónulegar og faglegar rætur.
Árið 2016 ákvað ég að prófa psilocybin, virka efnið í hugvíkkandi sveppum, í von um að finna leið út úr djúpu þunglyndi sem hafði fylgt mér áratugum saman. Þá hafði kvíðaröskun einnig bæst við. Ég hafði áður prófað fjölmörg hefðbundin lyf og sálfræðimeðferðir án þess að ná þeim bata sem ég vonaðist eftir.
Ég hafði ekki aðgang að faglegri leiðsögn og fór því þessa leið á eigin spýtur. Þótt reynsla mín hafi verið góð mæli ég ekki með því að fólk fylgi því fordæmi.
Til að gera langa sögu stutta upplifði ég nær algjöran bata frá þunglyndinu, þótt kvíðinn væri enn til staðar. Reynslan sjálf var mér líka afar dýrmæt. Hún hafði djúpstæð áhrif á sýn mína á sjálfan mig og tilveruna, óháð batanum. Þetta er mín persónulega reynsla og segir ekki til um hvernig öðrum muni farnast.
Í kjölfarið ákvað ég að afla mér eins mikillar þekkingar á hugvíkkandi efnum og ég gæti. Ég lauk meðal annars námi í hugvíkkandi meðferð við Integrative Psychiatry Institute og sótti ítarlegt námskeið á vegum MAPS um meðferð með MDMA. Það námskeið var ætlað heilbrigðisstarfsfólki, fór fram hér á landi og ég tók virkan þátt í að skipuleggja það.
Mér finnst rétt að þessi bakgrunnur sé lesendum ljós. Ég hef trú á því að hugvíkkandi efni geti gagnast við viðeigandi aðstæður, með vönduðum undirbúningi, faglegum stuðningi og eftirfylgd. Ég er jafnframt talsmaður lögleiðingar þeirra innan ábyrgs regluverks.
Um leið legg ég áherslu á vísindalega og gagnrýna hugsun. Eigin reynsla mín má ekki ráða því hvaða niðurstöður fá hér rými. Á vefnum er því fjallað um bæði jákvæðar og neikvæðar niðurstöður, mögulegan ávinning, áhættu og takmarkanir þekkingar okkar. Markmiðið er að styðja upplýsta umræðu, varfærni og ábyrgð.
Efni vefsins er almenn fræðsla. Það kemur ekki í stað einstaklingsbundins mats, ráðgjafar eða heilbrigðisþjónustu.

Sigurður Hólm Gunnarsson með Rick Doblin á ráðstefnu um hugvíkkandi efni á Íslandi, 13. janúar 2023.
© Sigurður Hólm Gunnarsson.

Sigurður Hólm Gunnarsson með Marcela Ot’alora G. og Bruce Poulter á námskeiði um meðferð með hugvíkkandi efnum á Íslandi, 12. mars 2024.
© Sigurður Hólm Gunnarsson.
Tengsl við félagið Hugvíkkandi
Þessi vefur er sjálfstæður og er ekki á vegum Hugvíkkandi – Samtaka áhugafólks um hugvíkkandi efni, sem halda úti vefnum hugvikkandi.org. Ég var stofnfélagi og fyrsti formaður þess góða félags en sit ekki lengur í stjórn þess.
Efnisval og umfjöllun hér eru því alfarið á mínum forsendum og á mína ábyrgð. Skoðanir sem ég set hér fram endurspegla ekki endilega afstöðu samtakanna.
Sigurður Hólm Gunnarsson
Hvað finn ég hér?
Þú getur lesið kaflana í þessari röð eða farið beint í það sem vekur áhuga þinn:
- Efnin: helstu efni, áhrif þeirra og munurinn á þeim.
- Rannsóknir: hvað niðurstöður benda til og hvað er enn óljóst.
- Saga og samfélag: hefðir, rannsóknasaga, reynsla og samfélagslegar spurningar.
- Skaðaminnkun: áhætta, stuðningur og fyrstu viðbrögð.
Psilocybin og MDMA fá ítarlegri umfjöllun, en vefurinn fjallar líka um LSD, ketamín, DMT, ayahuasca, 5-MeO-DMT og meskalín.
Ef þér líður illa eftir reynslu geturðu farið beint á aðstoðarsíðuna. Hugtakasafnið skýrir orð sem koma fyrir í efninu.
Heimildir og þjónustutengsl
Umfjöllunin byggir á frumrannsóknum, opinberum matsgögnum og fræðslu heilbrigðisstofnana. Á síðunni Heimildir og ítarefni er nánar fjallað um heimildaval og ritstjórn.
Vefurinn kynnir einnig samtalsþjónustu Allir sáttir. Þau þjónustutengsl eiga að vera lesendum ljós.
Ritstjórnarleg yfirferð: .
Ábendingar og samband
Ábendingar, leiðréttingar og spurningar um vefinn eru vel þegnar. Þú getur náð sambandi við ritstjóra með því að senda tölvupóst á hugvikkandi@hugvikkandi.is.
Ef þú ert að leita að hugvíkkandi samtali finnurðu upplýsingar um þjónustuna og tímabókun á allirsattir.is.
Lestu áfram
Næsti kafli fjallar um helstu hugvíkkandi efni, verkun þeirra og áhrif.