Forsíða / Rannsóknir / Ítarlegar rannsóknir

Ítarlegar rannsóknir

Hér er farið nánar yfir valdar rannsóknir á hugvíkkandi og skyldum efnum: hvernig þær voru gerðar, hvaða niðurstöður fengust og hvað takmarkar túlkun þeirra. Um langtímaárangur og endurtekna meðferð er fjallað á sérstakri síðu.

Bati og samanburður

Fólki getur batnað í rannsókn bæði með virku efni og lyfleysu. Bati í meðferðarhópnum einum og sér sýnir því ekki hversu mikið meðferðin hjálpaði. Til þess þarf að skoða muninn á hópunum og óvissuna í matinu.

Rannsókn sem finnur ekki tölfræðilega marktækan mun sýnir ekki sjálfkrafa að meðferðin hafi engin áhrif eða að meðferðirnar séu jafngildar. Einnig þarf að skoða hversu mikill munurinn er og hvaða þýðingu hann gæti haft fyrir fólk í daglegu lífi.

Skýringar á rannsóknarhugtökum eru í hugtakasafninu.

Hugtök sem hjálpa við lesturinn

Slembirannsókn
Þátttakendum er skipt af handahófi í hópa sem fá ólíka meðferð. Markmiðið er að gera hópana sambærilega í upphafi, svo munur á niðurstöðum skýrist síður af öðrum þáttum en meðferðinni.
Blindun
Þátttakendur, meðferðaraðilar eða þeir sem meta árangur vita ekki hvaða meðferð hver fær. Markmiðið er að draga úr áhrifum væntinga og matskekkju. Greinileg áhrif efnis geta þó gert fólki kleift að átta sig á meðferðinni.
Svörun og sjúkdómshlé
Svörun merkir að einkenni hafi minnkað samkvæmt viðmiðum rannsóknarinnar, oft um að minnsta kosti helming. Sjúkdómshlé merkir að einkennin séu undir ákveðnum mörkum við mat. Viðmiðin geta verið mismunandi milli rannsókna og hvorugt hugtakið felur sjálfkrafa í sér varanlegan bata.
Tölfræðileg marktækni
Niðurstaða telst tölfræðilega marktæk þegar hún uppfyllir fyrirfram ákveðið viðmið í tölfræðiprófi, oft p < 0,05. Það segir ekki eitt og sér hversu mikill eða mikilvægur munurinn er. Ómarktækur munur sannar heldur ekki að meðferðir séu jafngildar.

Psilocybin: þunglyndi og áfengisvandi

Psilocybin er klassískt hugvíkkandi efni. Í rannsóknunum hér að neðan fékk fólk efnið ásamt samtalsmeðferð eða sálrænum stuðningi.

JÁKVÆÐ NIÐURSTAÐA

Þunglyndi: samanburður við biðlista

Davis o.fl. · JAMA Psychiatry · 2021

Af 27 þátttakendum sem var slembiraðað luku 24 meðferð og mati. Fjórum vikum eftir seinni psilocybin-gjöfina höfðu 17 þeirra (71%) náð að minnsta kosti helmings minnkun þunglyndiseinkenna og 13 (54%) uppfylltu viðmið rannsóknarinnar um sjúkdómshlé.

Hafðu í huga: Meðferðin var borin saman við biðlista. Samanburðarhópurinn fékk því hvorki lyfleysu né aðra virka meðferð á biðtímanum. Rannsóknin getur ekki aðgreint áhrif psilocybin frá áhrifum stuðningsins og væntinga til meðferðarinnar. Fáir þátttakendur og stutt eftirfylgd takmarka einnig ályktanir.

Heimildir: [1]

JÁKVÆÐ NIÐURSTAÐA · FYRIRVARAR

Meðferðarþrátt þunglyndi

Goodwin o.fl. · NEJM · 2022 · 233 þátttakendur

Í rannsókn með 233 þátttakendum voru bornir saman stakir skammtar af psilocybin: 25 mg, 10 mg og 1 mg. Allir fengu sálrænan stuðning. Eftir þrjár vikur mældist 6,6 stiga meiri lækkun á MADRS-þunglyndiskvarðanum með 25 mg en 1 mg (95% öryggisbil 2,9–10,2; p < 0,001).

Hafðu í huga: Munurinn á 10 mg og 1 mg var ekki tölfræðilega marktækur. Rannsóknin staðfesti ekki viðvarandi svörun fram að 12 vikum. Samanburðurinn var við mjög lítinn skammt af psilocybin, ekki aðra viðurkennda þunglyndismeðferð.

Óæskileg heilsufarsatvik voru algeng. Sjálfsvígshugsanir, sjálfsvígshegðun eða sjálfsskaði voru skráð í öllum skammtahópum. Milligrömm og sveppir.

Heimildir: [2]

JÁKVÆÐ NIÐURSTAÐA

Færri dagar með mikilli áfengisneyslu

Bogenschutz o.fl. · JAMA Psychiatry · 2022

Í rannsókninni var 95 einstaklingum með áfengisvanda slembiraðað í tvo hópa. Af þeim fengu 93 að minnsta kosti eina rannsóknargjöf og voru með í aðalgreiningunni. Báðir hópar fengu samtalsmeðferð, auk psilocybin eða virkrar lyfleysu, diphenhydramine.

Á 32 vikna tímabili eftir fyrstu gjöf var hlutfall daga með mikilli áfengisneyslu 9,7% með psilocybin og 23,6% með virkri lyfleysu. Munurinn var 13,9 prósentustig (p = 0,01).

Hafðu í huga: Tölurnar lýsa hlutfalli daga með mikilli áfengisneyslu, ekki hlutfalli fólks sem hætti að drekka. Niðurstaðan á við psilocybin í þessari meðferðarumgjörð og segir ekki til um árangur án samtalsmeðferðar. Fleiri rannsóknir þarf til að staðfesta niðurstöðuna.

32 vikna eftirfylgd · Bogenschutz o.fl., 2022

Heimildir: [3]

Psilocybin og escítalópram: beinn samanburður

Carhart-Harris o.fl. · NEJM · 2021 · 59 þátttakendur

Psilocybin

Tvær 25 mg gjafir með þriggja vikna millibili, ásamt daglegri lyfleysu í sex vikur.

Escítalópram

Dagleg taka escítalóprams í sex vikur, ásamt tveimur 1 mg gjöfum af psilocybin með þriggja vikna millibili.

Báðir hópar fengu sálrænan stuðning. Eftir sex vikur höfðu stig á QIDS-SR-16-kvarðanum lækkað að meðaltali um 8,0 með psilocybin og 6,0 með escítalóprami. Munurinn á þessum aðalmælikvarða var ekki tölfræðilega marktækur (p = 0,17).

Nokkrir aukamælikvarðar bentu psilocybin í hag. Ekki var þó leiðrétt fyrir því að margir samanburðir voru gerðir, svo þær niðurstöður þarf að túlka með varúð. Rannsóknin sýnir hvorki að psilocybin-meðferðin sé árangursríkari en escítalópram né að meðferðirnar séu jafngildar.

Langtímaárangur: Sex vikna rannsókn svarar ekki hversu lengi ávinningurinn helst eða hvort og hvenær þurfi frekari meðferð. Um lengri eftirfylgd er fjallað á síðunni Langtímaárangur og endurtekin meðferð.

Heimild: [4]

Þegar ávinningur er ekki sýndur

EKKI SÝNDUR ÁVINNINGUR UMFRAM LYFLEYSU

Bakslagsvarnir við áfengisvanda

Rieser o.fl. · eClinicalMedicine · 2025

Þátttakendur höfðu nýlega lokið fráhvarfsmeðferð vegna áfengisvanda. Þeir fengu eina 25 mg gjöf af psilocybin eða lyfleysu, ásamt stuttri samtalsmeðferð í báðum hópum.

Í greiningu á 37 þátttakendum eftir fjórar vikur fannst ekki tölfræðilega marktækur munur á lengd bindindis eða meðalneyslu áfengis. Sama átti við eftir sex mánuði, þegar gögn frá 35 þátttakendum lágu fyrir.

Hafðu í huga: Rannsóknin var lítil og náði ekki fyrirhuguðum fjölda þátttakenda. Meðferðaráætlunin og þátttakendahópurinn voru einnig ólík því sem var í rannsókn Bogenschutz og félaga. Niðurstöðurnar undirstrika því að ávinningur sem sést í einni rannsókn á áfengisvanda á ekki sjálfkrafa við um aðrar meðferðaraðstæður.

Heimildir: [5]

MDMA og áfallastreituröskun

Rannsóknirnar hér fjalla um MDMA ásamt samtalsmeðferð við áfallastreituröskun (post-traumatic stress disorder, PTSD).

MAPS (Multidisciplinary Association for Psychedelic Studies) fjármagnaði rannsóknaráætlunina. MAPS Public Benefit Corporation skipulagði MAPP2-rannsóknina og hafði umsjón með gagnasöfnun, greiningu og túlkun gagnanna. Hlutverk rannsóknaraðila og fjárhagsleg tengsl eru tilgreind í frumgreininni. [6]

Neðar í kaflanum er einnig fjallað um mat Matvæla- og lyfjaeftirlits Bandaríkjanna (FDA) á gögnunum árið 2024. [10]

JÁKVÆÐ NIÐURSTAÐA · 3. FASI

MAPP1: minni einkenni og betri dagleg virkni

Mitchell o.fl. · Nature Medicine · 2021 · 90 þátttakendur

Greiningin náði til 90 einstaklinga með alvarlega áfallastreituröskun. Þeir fengu annaðhvort MDMA eða lyfleysu í þremur meðferðarlotum. Báðir hópar fengu sömu samtalsmeðferð, með undirbúningsviðtölum og úrvinnslu eftir loturnar.

Um tveimur mánuðum eftir síðustu lotuna höfðu einkenni minnkað meira í MDMA-hópnum samkvæmt CAPS-5. Munurinn var tölfræðilega marktækur (p<0,0001) og áhrifastærðin milli hópa stór (d=0,91). Einkenni trufluðu einnig daglegt líf minna í MDMA-hópnum.

Hafðu í huga: Samanburðurinn var við lyfleysu ásamt sömu samtalsmeðferð. Rannsóknin sýnir því ekki hvort MDMA-meðferð skili betri árangri en gagnreynd áfallamiðuð meðferð, svo sem hugræn úrvinnslumeðferð eða langvarandi berskjöldunarmeðferð. Þessi eftirfylgd segir heldur ekki til um árangur til lengri tíma.

Heimildir: [7]

JÁKVÆÐ NIÐURSTAÐA · STAÐFESTINGARRANNSÓKN

MAPP2: minni einkenni í annarri rannsókn

Mitchell o.fl. · Nature Medicine · 2023 · 104 þátttakendur

Í MAPP2 var 104 einstaklingum með miðlungsalvarlega eða alvarlega áfallastreituröskun skipt af handahófi í tvo hópa. Annar fékk MDMA og hinn lyfleysu, báðir ásamt sömu samtalsmeðferð.

Við lokamat, 6–8 vikum eftir síðustu meðferðarlotuna, var áætluð meðallækkun á CAPS-5-kvarðanum 23,7 stig í MDMA-hópnum og 14,8 stig í lyfleysuhópnum. Munurinn var tölfræðilega marktækur (p<0,001; d=0,7). Einkenni trufluðu einnig daglegt líf minna í MDMA-hópnum.

Hafðu í huga: Óæskileg heilsufarsatvik sem voru mikil að styrk (severe) komu fram hjá 5 af 53 í MDMA-hópnum og 2 af 51 í lyfleysuhópnum. Ekkert tilvik var flokkað sem alvarlegt (serious) samkvæmt reglum um lyfjarannsóknir. Þetta eru ólík flokkunarviðmið; „ekkert alvarlegt tilvik“ merkir því ekki að enginn hafi fundið fyrir miklum einkennum.

Eftirfylgdin var stutt og staðfestir ekki varanlegan bata eða öryggi til lengri tíma.

Heimildir: [6]

EKKI MARKTÆKUR MUNUR Á CAPS

Minni forrannsókn gaf óvissari niðurstöðu

Oehen o.fl. · Journal of Psychopharmacology · 2013

Í þessari litlu forrannsókn fengu 12 einstaklingar með langvinna áfallastreituröskun annaðhvort stærri eða minni skammt af MDMA, ásamt samtalsmeðferð. Minni skammturinn var notaður sem virk lyfleysa.

Munur milli hópa á breytingu einkenna var ekki tölfræðilega marktækur á CAPS-kvarðanum, sem byggist á mati fagaðila (p=0,066). Sjálfsmatskvarðinn PDS sýndi hins vegar meiri bata í hópnum sem fékk stærri skammtinn (p=0,014).

Túlkun: Niðurstöðurnar voru ólíkar eftir mælikvörðum og úrtakið mjög lítið. Rannsóknin gefur því ekki trausta niðurstöðu um árangur meðferðarinnar. Ómarktækur munur á CAPS sannar ekki að meðferðin hafi engin áhrif, en jákvætt sjálfsmat eitt og sér nægir heldur ekki til að staðfesta árangur.

Heimildir: [8]

GAGNRÝNI Á SÖNNUNARGÖGNIN

Hvers vegna þóttu gögnin ekki nægja FDA?

FDA · matsgögn og svarbréf · 2024

Í mati FDA árið 2024 voru meðal annars gerðar athugasemdir við að þátttakendur áttuðu sig á hópaskiptingunni og að væntingar gætu hafa haft áhrif á niðurstöðurnar. FDA gagnrýndi einnig ófullnægjandi skráningu óæskilegra áhrifa. Í svarbréfi í ágúst 2024 taldi stofnunin gögnin ekki nægja til að staðfesta virkni og kallaði eftir nýrri rannsókn á varanleika áhrifa og öryggi.

FDA taldi jafnframt að skýra þyrfti sjálfstætt framlag samtalsmeðferðarinnar og hvort hún væri nauðsynleg fyrir ávinning af MDMA. Þar sem báðir hópar fengu samtalsmeðferð gáfu rannsóknirnar ekki svar við því hvernig MDMA virkaði án hennar. Í ágústbréfinu var þetta þó sérstaklega flokkað sem viðbótarathugasemd sem stæði ekki í vegi fyrir samþykki.

Túlkun: Þetta var gagnrýnið mat á sönnunargögnum, ekki ný rannsókn sem sýndi að MDMA virkaði ekki. Mældur munur á hópunum svarar ekki einn og sér spurningum um skekkju, öryggi eða langtímaárangur.

Heimildir: [9] [10]

LSD, ketamín, DMT og ayahuasca

Rannsóknirnar hér fjalla um ólík efni og ólíkar raskanir. Í sumum er metið hvernig fólki líður sólarhring eftir eina gjöf, en aðrar fylgja þátttakendum í margar vikur eða kanna áframhaldandi meðferð.

Við lesturinn þarf því að skoða hverjir tóku þátt, hvaða meðferð samanburðarhópurinn fékk og hvenær árangur var metinn. Árangurstölur úr ólíkum rannsóknum segja ekki einar og sér hvaða meðferð hentar best.

LSD: MM120 við almennri kvíðaröskun

Rannsókn og samanburður: Robison o.fl. (2025) rannsökuðu MM120, lyfjaform af LSD, hjá 198 fullorðnum með almenna kvíðaröskun. Þátttakendur fengu eina gjöf af 25, 50, 100 eða 200 míkrógrömmum, eða lyfleysu. Skipulögð samtalsmeðferð var ekki hluti rannsóknarmeðferðarinnar.

Eftir fjórar vikur höfðu kvíðaeinkenni minnkað meira í hópunum sem fengu 100 og 200 míkrógrömm en í lyfleysuhópnum. Munurinn var tölfræðilega marktækur á HAM-A-kvíðakvarðanum. Minni skammtarnir sýndu ekki marktækan mun frá lyfleysu. Í hópunum sem fengu stærri skammtana mældist einnig meiri bati en með lyfleysu eftir 12 vikur. [17]

Hvað þarf að hafa í huga? Þetta var 2b-fasa rannsókn sem átti meðal annars að finna heppilegan skammt fyrir frekari rannsóknir. Skynbreytingar, ógleði og höfuðverkur voru algeng óæskileg áhrif. Áberandi áhrif LSD geta torveldað blindun og 12 vikna eftirfylgd staðfestir ekki árangur til lengri tíma. [17] Verkun og upplifun LSD.

Ketamín og esketamín: skjót áhrif og áframhaldandi meðferð

Ketamín: Í rannsókn Murrough o.fl. (2013) fengu 73 einstaklingar með meðferðarþrátt þunglyndi eina gjöf af ketamíni eða midazolam í æð. Midazolam var notað sem virk lyfleysa. Eftir 24 klukkustundir uppfylltu 64% ketamínhópsins viðmið um svörun, samanborið við 28% samanburðarhópsins. Þetta sýnir skjótan ávinning eftir eina gjöf en staðfestir ekki varanlegan bata. [18]

Esketamín: Spravato er nefúði með esketamíni. Í ESB hefur það markaðsleyfi við meðferðarþráu þunglyndi hjá fullorðnum þegar að minnsta kosti tvær fyrri lyfjameðferðir hafa ekki skilað nægum árangri, ásamt SSRI- eða SNRI-lyfi. Meðferðin felur í sér endurteknar gjafir og getur haldið áfram sem viðhaldsmeðferð. Hún fer fram undir beinu eftirliti heilbrigðisstarfsfólks vegna meðal annars slævandi áhrifa, firringar og blóðþrýstingshækkunar. [19]

Hafðu í huga: Rannsókn á einni ketamíngjöf og gögn um áframhaldandi esketamínmeðferð svara ólíkum spurningum. Ekki er hægt að yfirfæra niðurstöður sjálfkrafa milli lyfjaforma og meðferðaráætlana. Markaðsleyfi í ESB segir heldur ekki eitt og sér til um aðgengi að meðferð á Íslandi. Verkun og áhætta ketamíns.

DMT: lítil slembirannsókn við þunglyndi

Rannsókn og samanburður: Erritzoe o.fl. (2026) skiptu 34 einstaklingum með miðlungsalvarlegt eða alvarlegt þunglyndi af handahófi í tvo jafnstóra hópa. Annar fékk DMT í æð og hinn lyfleysu, báðir með sálrænum stuðningi. Eftir tvær vikur höfðu þunglyndiseinkenni minnkað meira í DMT-hópnum. Munurinn á breytingu MADRS-stiga var að meðaltali 7,35 stig, DMT í hag (p=0,023). [20]

Eftirfylgd: Eftir blindaða hlutann var öllum boðið DMT. Þeir sem höfðu fengið lyfleysu gátu þá fengið sína fyrstu gjöf en hinir aðra. Bati mældist áfram í opnu eftirfylgdinni, en þar var enginn áframhaldandi lyfleysusamanburður. Því er ekki hægt að túlka þann hluta sem sömu staðfestingu á virkni og blindaða samanburðinn.

Hafðu í huga: Þetta var lítil rannsókn á fyrstu stigum klínískrar þróunar, með aðeins tveggja vikna blinduðum samanburði. Óæskileg áhrif voru að mestu væg eða miðlungsmikil, meðal annars verkur við innrennslisstað, ógleði og tímabundinn kvíði. Stærri rannsóknir þarf til að meta langtímaárangur og sjaldgæfa áhættu. Niðurstöðurnar eiga við DMT í æð með þessum stuðningi og yfirfærast ekki sjálfkrafa á innöndun, ayahuasca eða 5-MeO-DMT. [20] Verkun og upplifun DMT.

Ayahuasca: vísbendingar eftir eina viku

Rannsókn og samanburður: Palhano-Fontes o.fl. (2019) báru saman eina gjöf af ayahuasca og lyfleysu hjá 29 einstaklingum með meðferðarþrátt þunglyndi. Eftir sjö daga höfðu þunglyndiseinkenni minnkað meira í ayahuasca-hópnum. Á MADRS-kvarðanum náðu 64% svörun, samanborið við 27% í lyfleysuhópnum. Svörun merkir hér að stigafjöldi hafi lækkað um að minnsta kosti helming. [21]

Hvað þarf að hafa í huga? Úrtakið var lítið og árangur metinn í aðeins eina viku. Notuð var ein efnagreind lota af drykknum við stýrðar rannsóknaraðstæður. Ógleði og uppköst voru algeng. Niðurstöðurnar gefa vísbendingu um skammtímaávinning en staðfesta ekki varanlegan bata eða öryggi annarra drykkja og umgjarða. [21]

Sjá einnig skýringu á MAO-hemlum og verkun og áhættu ayahuasca.

5-MeO-DMT og meskalín

Hér eru tvö dæmi um rannsóknir sem svara ólíkum spurningum. Rannsóknin á 5-MeO-DMT kannaði hvort meðferð drægi úr þunglyndiseinkennum. Rannsóknin á meskalíni skoðaði hins vegar skammtímaáhrif hjá heilbrigðum þátttakendum.

Rannsókn á því hvernig efni breytir skynjun, líðan og líkamsstarfsemi sýnir ekki ein og sér hvort það gagnist við meðferð sjúkdóms.

5-MeO-DMT: meðferðarrannsókn við þunglyndi

Rannsókn og samanburður: Cubała o.fl. (2026) báru saman GH001, lyfjaform 5-MeO-DMT til innöndunar, og lyfleysu hjá 81 einstaklingi með meðferðarþrátt þunglyndi. Meðferðin fór fram á einum degi og gat falið í sér allt að þrjár gjafir. Á áttunda degi höfðu þunglyndiseinkenni minnkað meira í GH001-hópnum. Munurinn á breytingu MADRS-stiga var 15,5 stig, GH001 í hag (p<0,001). [15]

Eftirfylgd og fyrirvarar: Lyfleysusamanburðurinn stóð aðeins í viku. Í sex mánaða opnu eftirfylgdinni fengu 20 af þeim 23 sem höfðu náð sjúkdómshléi á áttunda degi endurtekna meðferð. Aðeins þrír héldust í sjúkdómshléi án frekari gjafa. Því má ekki túlka langtímaniðurstöðurnar sem varanlegan bata eftir einn meðferðardag. Áberandi hugræn áhrif geta einnig torveldað blindun. Sjá langtímaárangur og endurtekna meðferð. [15]

Öryggi í rannsókninni: Óæskileg heilsufarsatvik komu fram hjá 29 af 40 í GH001-hópnum og 3 af 41 í lyfleysuhópnum. Þau voru öll væg eða miðlungsmikil; algengust með GH001 voru ógleði, aukin munnvatnsmyndun og náladofi. Ekkert alvarlegt tilvik var skráð í vikulanga samanburðinum. Lítil rannsókn útilokar þó ekki sjaldgæfa áhættu. [15]

Meskalín: rannsókn á bráðum áhrifum

Rannsókn og samanburður: Ley o.fl. (2023) báru saman meskalín, LSD, psilocybin og lyfleysu hjá 32 heilbrigðum þátttakendum. Hver þátttakandi fékk öll efnin á aðskildum rannsóknardögum, í röð sem var ákveðin af handahófi. Mælt var hvernig upplifun, líðan og líkamsstarfsemi breyttust og hvernig efnin fóru um líkamann.

Við stærri meskalínskammtinn var styrkur upplifunar sambærilegur við LSD og psilocybin á þeim mælikvörðum sem notaðir voru. Áhrif meskalíns komu hægar fram og vörðu lengur, að meðaltali um 11 klukkustundir við stærri skammtinn. Tímalengdin var breytileg milli einstaklinga. [16]

Rannsókn á áhrifum, ekki meðferð: Þátttakendur voru heilbrigðir og rannsóknin kannaði ekki hvort meskalín drægi úr einkennum geðröskunar. Sambærileg upplifun af ólíkum efnum staðfestir ekki að þau hafi sama meðferðargildi. Til að meta það þarf rannsóknir hjá fólki með viðkomandi röskun, með viðeigandi samanburði og eftirfylgd. [16]

Niðurstöður og fyrirvarar

Meðferð og umgjörð

Í rannsóknunum er heilsufar þátttakenda metið og meðferðin fer fram undir eftirliti heilbrigðisstarfsfólks. Sumar fela í sér skipulagða samtalsmeðferð, aðrar fyrst og fremst sálrænan stuðning við lyfjagjöfina.

Niðurstöðurnar eiga við það efni, þá meðferðaráætlun og þann stuðning sem var rannsakaður. Þær sýna ekki sjálfkrafa hvaða árangri má búast við utan þessarar umgjarðar eða hvert sjálfstætt framlag lyfsins og stuðningsins er.

Blindun og samanburður

Í blinduðum rannsóknum eiga þátttakendur og meðferðaraðilar ekki að vita hver fær virka efnið og hver fær samanburðarmeðferðina. Áberandi áhrif hugvíkkandi efna geta þó gert þeim kleift að giska á hópaskiptinguna. Væntingar geta þá haft áhrif á líðan og mat á einkennum. Það gerir niðurstöðurnar ekki sjálfkrafa ógildar, en eykur óvissu um hversu stóran hluta mælds ávinnings má rekja til lyfsins.

Samanburðarhópurinn skiptir líka máli. Biðlisti, lyfleysa, virk lyfleysa og viðurkennd meðferð svara ólíkum spurningum. Meiri bati en hjá fólki á biðlista sýnir til dæmis ekki að meðferðin sé betri en önnur virk meðferð.

Öryggi og langtímaárangur

Bati fyrstu dagana eða vikurnar segir ekki einn og sér til um langtímaárangur. Fylgja þarf þátttakendum eftir til að sjá hvort batinn helst, hvort einkenni koma aftur og hvort frekari meðferðar er þörf. Skoða þarf líka hversu margir hætta þátttöku og hvort brottfall geti skekkt niðurstöðurnar.

Öryggi ræðst ekki aðeins af því hvort alvarleg tilvik voru skráð. Meta þarf hvernig óæskilegum áhrifum var safnað, hversu lengi var fylgst með þeim og hverjir fengu að taka þátt. Lítil eða stutt rannsókn getur misst af sjaldgæfum eða síðkomnum vandamálum. Niðurstöður hjá vandlega völdum þátttakendum eiga heldur ekki sjálfkrafa við fólk sem var útilokað frá rannsókninni.

Nánari gagnrýnin umræða: [11] · [12].

Örskömmtun: hvað vitum við?

Örskömmtun (microdosing) er notkun mjög lítilla skammta hugvíkkandi efna, yfirleitt endurtekið yfir ákveðið tímabil. Skammtarnir eru mun minni en þeir sem oftast eru notaðir í meðferðarrannsóknunum hér að framan.

Niðurstöður þeirra rannsókna segja ekki sjálfkrafa til um gagnsemi eða öryggi örskömmtunar. Til þess þarf rannsóknir sem kanna örskömmtun sérstaklega.

Upplifun og mældur ávinningur fara ekki alltaf saman

Cavanna o.fl. (2022) rannsökuðu 34 einstaklinga sem höfðu hug á að hefja örskömmtun. Hver þátttakandi fékk bæði lítið magn af psilocybin-sveppum og lyfleysu á aðskildum rannsóknartímabilum. Röðin var ákveðin af handahófi og hvorki þátttakendur né rannsakendur áttu að vita hvað var gefið hverju sinni.

Þátttakendur fundu fyrir áhrifum, sérstaklega þeir sem gátu greint hvort þeir höfðu fengið sveppi eða lyfleysu. Ekki mældist þó marktækur ávinningur fyrir vellíðan, sköpunargáfu eða hugræna getu á þeim mælikvörðum sem notaðir voru.

Hafðu í huga: Þetta var lítil rannsókn á skammtímaáhrifum hjá fólki sem hafði sjálft áhuga á örskömmtun. Hún prófaði ekki langtímameðferð við tilteknum sjúkdómi. Rofin blindun torveldar líka aðgreiningu lyfjaáhrifa og væntinga. Að finna fyrir áhrifum er því ekki það sama og að sýnt hafi verið fram á ávinning fyrir heilsu eða færni.

Heimild: [13]

Lítið magn tryggir ekki öryggi

Lítill skammtur er ekki trygging fyrir öryggi. Samkvæmt samantekt NCCIH er enn óljóst hvort örskömmtun psilocybin sé örugg eða árangursrík. Meðal tilkynntra vandamála eru svefnleysi, aukinn kvíði og versnandi líðan. Einnig vantar traust gögn um áhrif endurtekinnar notkunar til lengri tíma.

Ekki hætta eða breyta ávísuðum lyfjum án samráðs við lækni. Áhætta og skaðaminnkun.

Heimild: [14]

Lestu áfram

Farðu aftur í rannsóknayfirlitið eða lestu áfram um sögu og menningu hugvíkkandi efna.

Heimildir

  1. Davis o.fl. (2021). Effects of Psilocybin-Assisted Therapy on Major Depressive Disorder: A Randomized Clinical Trial. JAMA Psychiatry. DOI: 10.1001/jamapsychiatry.2020.3285.
  2. Goodwin o.fl. (2022). Single-Dose Psilocybin for a Treatment-Resistant Episode of Major Depression. The New England Journal of Medicine. DOI: 10.1056/NEJMoa2206443.
  3. Bogenschutz o.fl. (2022). Percentage of Heavy Drinking Days Following Psilocybin-Assisted Psychotherapy vs Placebo in the Treatment of Adult Patients With Alcohol Use Disorder: A Randomized Clinical Trial. JAMA Psychiatry. DOI: 10.1001/jamapsychiatry.2022.2096.
  4. Carhart-Harris o.fl. (2021). Trial of Psilocybin versus Escitalopram for Depression. The New England Journal of Medicine. DOI: 10.1056/NEJMoa2032994.
  5. Rieser o.fl. (2025). Psilocybin-assisted therapy for relapse prevention in alcohol use disorder: a phase 2 randomized clinical trial. EClinicalMedicine. DOI: 10.1016/j.eclinm.2025.103149.
  6. Mitchell o.fl. (2023). MDMA-assisted therapy for moderate to severe PTSD: a randomized, placebo-controlled phase 3 trial. Nature Medicine. DOI: 10.1038/s41591-023-02565-4.
  7. Mitchell o.fl. (2021). MDMA-assisted therapy for severe PTSD: a randomized, double-blind, placebo-controlled phase 3 study. Nature Medicine. DOI: 10.1038/s41591-021-01336-3.
  8. Oehen o.fl. (2013). A randomized, controlled pilot study of MDMA (± 3,4-Methylenedioxymethamphetamine)-assisted psychotherapy for treatment of resistant, chronic Post-Traumatic Stress Disorder (PTSD). Journal of Psychopharmacology. DOI: 10.1177/0269881112464827.
  9. FDA (8. ágúst 2024). Complete Response Letter, NDA 215455. Svarbréf um umsókn um markaðsleyfi (PDF).
  10. FDA (4. júní 2024). FDA Briefing Document: NDA 215455, Midomafetamine (MDMA). Mat á blindun, langtímaáhrifum, hlutverki samtalsmeðferðar og öryggisgögnum (PDF).
  11. Halvorsen, Naudet og Cristea (2021). Challenges with benchmarking of MDMA-assisted psychotherapy. Nature Medicine. DOI: 10.1038/s41591-021-01525-0.
  12. Colcott o.fl. (2024). Side-effects of mdma-assisted psychotherapy: a systematic review and meta-analysis. Neuropsychopharmacology. DOI: 10.1038/s41386-024-01865-8.
  13. Cavanna o.fl. (2022). Microdosing with psilocybin mushrooms: a double-blind placebo-controlled study. Translational Psychiatry. DOI: 10.1038/s41398-022-02039-0.
  14. NCCIH / NIH (2024). Psilocybin for Mental Health and Addiction: What You Need To Know. Uppfært í maí 2024; skoðað 29. október 2026.
  15. Cubała o.fl. (2026). GH001 vs Placebo in Patients With Treatment-Resistant Depression: A Randomized Clinical Trial. JAMA Psychiatry. DOI: 10.1001/jamapsychiatry.2026.0096.
  16. Ley o.fl. (2023). Comparative acute effects of mescaline, lysergic acid diethylamide, and psilocybin in a randomized, double-blind, placebo-controlled cross-over study in healthy participants. Neuropsychopharmacology. DOI: 10.1038/s41386-023-01607-2.
  17. Robison o.fl. (2025). Single Treatment With MM120 (Lysergide) in Generalized Anxiety Disorder: A Randomized Clinical Trial. JAMA. DOI: 10.1001/jama.2025.13481.
  18. Murrough o.fl. (2013). Antidepressant efficacy of ketamine in treatment-resistant major depression: a two-site randomized controlled trial. American Journal of Psychiatry. DOI: 10.1176/appi.ajp.2013.13030392.
  19. EMA. Spravato (esketamine). Viðurkennd notkun, rannsóknarniðurstöður og eftirlit í ESB. Skoðað 29. október 2026.
  20. Erritzoe o.fl. (2026). A short-acting psychedelic intervention for major depressive disorder: a phase IIa randomized placebo-controlled trial. Nature Medicine. DOI: 10.1038/s41591-025-04154-z.
  21. Palhano-Fontes o.fl. (2019). Rapid antidepressant effects of the psychedelic ayahuasca in treatment-resistant depression: a randomized placebo-controlled trial. Psychological Medicine. DOI: 10.1017/S0033291718001356.

Ritstjórnarleg yfirferð: .

Valdar rannsóknir og matsgögn. Yfirlitið er ekki tæmandi. Tölur og skammtar lýsa rannsóknunum, ekki ráðleggingum um meðferð.

Efnið er almenn fræðsla og kemur ekki í stað einstaklingsbundins mats eða heilbrigðisþjónustu. Síðan kynnir einnig samtalsþjónustu á allirsattir.is.

Tengt efni

Persónuverndarstillingar

Nauðsynleg geymsla í vafranum vistar val þitt. Ytri myndspilarar frá YouTube eru óvirkir þar til þú leyfir þá.