Forsíða / Rannsóknir / Samanburður meðferða
Samanburður meðferða
Hér er fjallað um árangur meðferða með hugvíkkandi og skyldum efnum og samanburð við þunglyndislyf og sálmeðferð. Skoðað er hvað niðurstöðurnar segja, hversu traust gögnin eru og hvað takmarkar samanburðinn.
Hvað benda niðurstöðurnar til?
Rannsóknir benda til þess að sumar þessara meðferða geti dregið úr einkennum. Hversu traustar niðurstöðurnar eru og hvað má álykta um samanburð við aðrar meðferðir fer eftir efninu, vandanum sem er til meðferðar og því hvernig rannsóknin er gerð.
Psilocybin: vísbendingar um ávinning við þunglyndi
Psilocybin með sálrænum stuðningi hefur dregið úr þunglyndiseinkennum í rannsóknum. Í sex vikna rannsókn með 59 þátttakendum var það borið saman við þunglyndislyfið escítalópram (virka efnið í Cipralex). Báðir hópar fengu sálrænan stuðning og einkenni minnkuðu í báðum hópum. [17] [3] [15]
Munurinn á hópunum var ekki tölfræðilega marktækur á aðalmælikvarða rannsóknarinnar. Sumar aðrar mælingar bentu psilocybin í hag, en þær niðurstöður þarf að túlka með varúð. Rannsóknin sýnir því hvorki að psilocybin sé betra en escítalópram né að meðferðirnar séu jafn árangursríkar. Til þess þarf stærri og lengri rannsóknir. [3]
Esketamín: samanburður við quetiapín
Í rannsókn á fólki með þunglyndi sem hafði ekki batnað nægilega við fyrri lyfjameðferðir var esketamín í nefúða (Spravato) borið saman við quetiapín í forðatöflum. Báðum meðferðunum var bætt við áframhaldandi töku þunglyndislyfs. Eftir átta vikur náðu um 27 af hverjum 100 sjúkdómshléi með esketamíni, samanborið við 18 af hverjum 100 með quetiapíni. [5]
Sjúkdómshlé merkir hér að þunglyndiseinkenni voru komin niður fyrir ákveðin mörk á matskvarða. Það jafngildir ekki endilega varanlegum bata. Niðurstaðan styður esketamín fremur en quetiapín sem viðbótarmeðferð við þessar aðstæður, en segir ekki að það sé betra en öll önnur þunglyndismeðferð. [5] [16]
MDMA: vísbendingar um ávinning við áfallastreitu
Í rannsóknum á áfallastreituröskun hafa einkenni minnkað meira hjá fólki sem fékk MDMA ásamt samtalsmeðferð en hjá þeim sem fengu sömu samtalsmeðferð með lyfleysu. Niðurstöðurnar benda því til ávinnings af því að bæta MDMA við meðferðina. [9]
Óvissa er þó um hversu mikill ávinningurinn er. Margir þátttakendur gátu áttað sig á hvort þeir fengu MDMA eða lyfleysu, sem getur haft áhrif á væntingar og niðurstöður. Rannsóknirnar sýna heldur ekki að MDMA með samtalsmeðferð sé árangursríkara en þekkt lyfjameðferð eða gagnreynd áfallamiðuð sálmeðferð. [9] [10]
Um önnur efni er fjallað á síðunni Ítarlegar rannsóknir. Hér á eftir skoðum við hvað þarf að hafa í huga þegar árangur ólíkra meðferða er borinn saman.
Á þessari síðu
Efnisyfirlit
Hvernig má bera árangur saman?
Þessi síða fjallar um valdar rannsóknir á meðferð fullorðinna með þunglyndi eða áfallastreituröskun. Umfjöllunin nær ekki til meðferðar barna eða meðferðar við geðhvarfasýki og geðrofi.
Þegar árangur er metinn þarf að skoða fleira en breytingar á einkennum: hvernig fólki gengur í daglegu lífi, hvaða aukaverkanir fylgja meðferðinni og hversu lengi ávinningurinn helst. Meðferðarval fer líka eftir þörfum, aðstæðum og óskum hvers og eins. [1] [7]
Beinn samanburður merkir að tvær meðferðir séu bornar saman í sömu rannsókn. Þá er hægt að meta muninn við sambærilegar rannsóknaraðstæður. Ekki er hægt að bera saman árangurstölur úr ólíkum rannsóknum án þess að taka tillit til munar á þátttakendum, fyrri meðferð, stuðningi, væntingum og því hvenær árangurinn er metinn. [11]
- Svörun (response): Einkenni hafa minnkað um tiltekið hlutfall samkvæmt viðmiðum rannsóknarinnar, oft um að minnsta kosti helming.
- Sjúkdómshlé (remission): Einkenni eru komin niður fyrir ákveðin mörk á matskvarða. Það merkir ekki endilega að öll einkenni séu horfin eða að þau geti ekki komið aftur.
- Prósentustig: Ef 20 af hverjum 100 ná sjúkdómshléi í einum hópi og 30 af hverjum 100 í öðrum er munurinn 10 prósentustig, eða 10 fleiri af hverjum 100.
Virk efni, lyfjaheiti og samheitalyf
Virka efnið (active ingredient) er efnið sem gefur lyfinu lækningalega verkun. Vöruheitið (brand name) er nafnið sem lyfið er selt undir. Cipralex inniheldur til dæmis escítalópram og Spravato esketamín. [15] [16]
Samheitalyf (generic medicine) hefur sama virka efni, í sama magni og sama lyfjaformi og frumlyfið sem það er borið saman við. Staðfesta þarf sambærilegt frásog virka efnisins í líkamanum. Heiti, útlit, hjálparefni og verð geta þó verið ólík. [14]
Ólík lyfjaform eða styrkleikar eru ekki sjálfkrafa víxlanleg. Í apóteki er hægt að fá upplýsingar um hvaða lyf má skipta út fyrir hvert annað samkvæmt skiptiskrá Lyfjastofnunar.
Þunglyndi: hvað vitum við um lyf og psilocybin?
Þunglyndislyf hafa verið mikið rannsökuð
Þunglyndislyf hafa verið rannsökuð í fjölda slembirannsókna. Í stórri rannsóknarsamantekt voru öll lyfin sem skoðuð voru árangursríkari en lyfleysa samkvæmt svörunarviðmiði: hlutfallslega fleiri náðu að minnsta kosti helmings minnkun þunglyndiseinkenna. Niðurstöðurnar miðuðust einkum við um átta vikna meðferð og segja því ekki einar og sér til um langtímaárangur. [2]
Árangur og aukaverkanir eru mismunandi milli einstaklinga. Við val á lyfi er meðal annars tekið mið af fyrri reynslu af meðferð, öðrum heilsufarsvanda og óskum viðkomandi. [12] [1]
Nánar: þunglyndislyf
Samantekt Cipriani og félaga frá 2018 náði til 522 slembirannsókna með 116.477 þátttakendum og 21 þunglyndislyfs. Þar var bæði skoðað hversu margir náðu svörun og hversu margir hættu meðferð, óháð ástæðu.
Gagnlíkindahlutföll (odds ratios, OR) fyrir svörun með lyfi samanborið við lyfleysu voru á bilinu 1,37–2,13. Þetta eru tölfræðileg hlutföll sem lýsa mun á hópum, ekki prósentur þeirra sem náðu bata. Ekki er því hægt að lesa eitt almennt batahlutfall fyrir þunglyndislyf úr þessum tölum. [2]
Dæmi um þunglyndislyf og lyfjaflokka
Beinn samanburður: psilocybin og escítalópram
Í sex vikna rannsókn með 59 þátttakendum voru psilocybin og escítalópram borin saman við meðferð þunglyndis. Báðir hópar fengu sálrænan stuðning. [3]
Þunglyndiseinkenni minnkuðu í báðum hópum. Munurinn var ekki tölfræðilega marktækur á aðalmælikvarða rannsóknarinnar. Nokkrir aukamælikvarðar bentu psilocybin í hag, en þar sem ekki var leiðrétt fyrir mörgum samanburðum staðfesta þeir ekki yfirburði meðferðarinnar. [3]
Óæskileg heilsufarsatvik voru skráð hjá svipuðu hlutfalli þátttakenda í hópunum. Huglæg áhrif psilocybin meðan efnið virkaði voru þó ekki talin með sem óæskileg tilvik. Fáir þátttakendur og stuttur rannsóknartími takmarka einnig hvað hægt er að segja um öryggi og varanleika árangurs. [3]
Nánar: psilocybin
Annar hópurinn fékk psilocybin í tveimur meðferðarlotum og tók lyfleysu daglega. Hinn tók escítalópram daglega og fékk mjög lítinn skammt af psilocybin í tveimur lotum. [3]
- Aðalmælikvarði eftir sex vikur: Stig á QIDS-SR-16, sjálfsmatskvarða fyrir þunglyndiseinkenni, lækkuðu að meðaltali um 8,0 með psilocybin og 6,0 með escítalóprami. Munurinn var ekki tölfræðilega marktækur (p = 0,17).
- Aukamælikvarðar: Svörun var 70% með psilocybin og 48% með escítalóprami. Sjúkdómshlé var 57% og 28%. Þar sem ekki var leiðrétt fyrir mörgum samanburðum staðfesta þessar niðurstöður ekki yfirburði psilocybin.
Eftir sex mánuði luku 46 af 59 þátttakendum mati. Þunglyndiseinkenni voru enn minni en fyrir meðferð í báðum hópum, án tölfræðilega marktæks munar milli þeirra. Margir höfðu fengið aðra meðferð á eftirfylgdartímanum og öryggi var ekki metið. Þetta var því ekki samanburður á psilocybin og sex mánaða samfelldri töku escítalóprams. [4] Nánar um samanburðinn.
Þegar fyrri meðferð hefur ekki dugað
Meðferðarþrátt þunglyndi er yfirleitt notað um þunglyndi sem hefur ekki batnað nægilega þrátt fyrir að minnsta kosti tvær lyfjameðferðir í sömu veikindalotu. Þá er miðað við að lyfin hafi verið tekin í viðeigandi skammti og nægilega lengi. Nákvæm viðmið geta verið mismunandi milli rannsókna. [5]
Þetta merkir ekki að frekari meðferð geti ekki hjálpað. Þegar rannsóknir eru bornar saman þarf þó að taka tillit til fyrri meðferðar þátttakenda; niðurstöður hjá þessum hópi eiga ekki sjálfkrafa við um fólk sem er að hefja sína fyrstu meðferð. [1]
Beinn samanburður: esketamín og quetiapín
Í ESCAPE-TRD-rannsókninni náðu fleiri sjúkdómshléi eftir átta vikur með esketamíni í nefúða (Spravato) en með quetiapíni í forðatöflum. Í báðum hópum var meðferðinni bætt við áframhaldandi töku SSRI- eða SNRI-lyfs. [5]
Niðurstaðan styður esketamín fremur en quetiapín sem viðbótarmeðferð hjá fólkinu sem rannsóknin náði til. Hún segir ekki til um samanburð við psilocybin eða aðra meðferðarkosti sem ekki voru prófaðir í rannsókninni. [5]
Rannsóknin var styrkt af Janssen EMEA.
Nánar: esketamín
Í rannsókninni var 676 þátttakendum slembiraðað í tvo hópa. Þátttakendur vissu hvaða meðferð þeir fengu, en þeir sem mátu þunglyndiseinkennin vissu það ekki.
- Sjúkdómshlé eftir átta vikur: 91 af 336 (27,1%) með esketamíni og 60 af 340 (17,6%) með quetiapíni. Munurinn var 9,5 prósentustig. Sjúkdómshlé var skilgreint sem 10 stig eða minna á MADRS-kvarðanum, sem mælir þunglyndiseinkenni.
- Sjúkdómshlé eftir átta vikur án bakslags fram að viku 32: 73 af 336 (21,7%) með esketamíni og 48 af 340 (14,1%) með quetiapíni.
Hlutföllin miðast við alla sem var slembiraðað í hvorn hóp, ekki aðeins þá sem luku meðferð eða náðu sjúkdómshléi. Í aðalgreiningunni voru þeir sem hættu rannsóknarmeðferðinni taldir með þeim sem náðu ekki viðkomandi rannsóknarmarkmiði. [5]
Öryggi í sömu rannsókn: Óæskileg heilsufarsatvik voru algeng í báðum hópum. Með því er átt við heilsufarsvanda sem kom fram eftir upphaf meðferðar, án þess að hann hafi endilega verið af völdum lyfsins. Tilvikin voru yfirleitt væg eða miðlungsalvarleg og oft skammvinn með esketamíni. [6]
Öryggistölur rannsóknarinnar
- Að minnsta kosti eitt óæskilegt tilvik: 91,9% með esketamíni og 78,0% með quetiapíni.
- Alvarlegt óæskilegt tilvik: 5,7% með esketamíni og 5,1% með quetiapíni.
- Meðferð hætt vegna óæskilegs tilviks: 4,2% með esketamíni og 11,0% með quetiapíni.
Öryggisgreiningin náði aðeins til þeirra sem fengu að minnsta kosti einn skammt: 334 með esketamíni og 336 með quetiapíni. Hlutföllin miðast því við aðra hópstærð en árangurstölurnar hér að ofan. [5] [6]
Rannsóknir á psilocybin og öðrum efnum
Á rannsóknasíðunni er nánar fjallað um psilocybin, ketamín, DMT, ayahuasca og 5-MeO-DMT, rannsóknarsnið og takmarkanir niðurstaðna.
Þar þarf sérstaklega að skoða við hvað meðferðin var borin saman. Ávinningur umfram lyfleysu staðfestir ekki að meðferð sé árangursríkari en aðrir meðferðarkostir þegar fyrri meðferð hefur ekki dugað.
Áfallastreituröskun: lyf, sálmeðferð og MDMA
Bandarísku VA/DoD-meðferðarleiðbeiningarnar frá 2023 mæla með áfallamiðaðri sálmeðferð fremur en lyfjum sem fyrstu meðferð við áfallastreituröskun. Þar er sérstaklega mælt með hugrænni úrvinnslumeðferð (cognitive processing therapy, CPT), langvarandi berskjöldun (prolonged exposure, PE) og EMDR-meðferð (eye movement desensitization and reprocessing). [13]
Lyfjameðferð getur einnig komið til greina, til dæmis ef áfallamiðuð sálmeðferð er ekki aðgengileg eða viðkomandi kýs hana ekki. Sertralín, paroxetín og venlafaxín eru þau lyf sem hafa sterkastan rannsóknarstuðning í leiðbeiningunum. [7]
Sertralín og lyfleysa: rannsókn frá 2000
Í 12 vikna slembirannsókn Brady og félaga frá 2000 tóku þátt 187 manns með áfallastreituröskun. Við lok rannsóknarinnar náðu 53% svörun með sertralíni og 32% með lyfleysu. Hlutföllin lýsa niðurstöðu þessarar rannsóknar, ekki almennu árangurshlutfalli sertralíns. [8]
Hvernig var svörun metin?
Til að teljast hafa náð svörun þurfti þátttakandi að uppfylla bæði þessi skilyrði:
- Áfallastreitueinkenni höfðu minnkað um meira en 30% á CAPS-2-kvarðanum.
- Heildarmat á bata samkvæmt CGI-I-kvarðanum sýndi mikinn eða mjög mikinn bata.
Svörun merkir því ekki það sama í öllum rannsóknum. Hér var ekki miðað við helmings minnkun einkenna eins og í þunglyndisrannsóknunum sem fjallað er um hér að ofan. [8]
MDMA með samtalsmeðferð: samanburður við lyfleysu
Í MAPP2-rannsókninni minnkuðu áfallastreitueinkenni meira hjá þeim sem fengu MDMA ásamt samtalsmeðferð en hjá þeim sem fengu lyfleysu með sömu samtalsmeðferð. Samanburðurinn snerist því um ávinning af því að bæta MDMA við þessa meðferð. [9]
Sertralín var ekki prófað í rannsókninni. Ekki er því hægt að nota niðurstöðuna til að fullyrða að MDMA með samtalsmeðferð sé árangursríkara en sertralín. Rannsóknirnar tvær notuðu einnig ólíka matskvarða og svörunarviðmið, svo árangurstölurnar eru ekki beint samanburðarhæfar. [9]
Nánar: MDMA
Í MAPP2-rannsókninni var 104 þátttakendum slembiraðað í tvo hópa. Lokamat fór fram 18 vikum eftir upphaf rannsóknarinnar, eða 6–8 vikum eftir síðustu gjöf MDMA eða lyfleysu.
Áfallastreitueinkenni voru metin með CAPS-5-kvarðanum. Lægri stig merkja vægari einkenni. Áætluð meðaltalslækkun samkvæmt tölfræðilíkani rannsóknarinnar var:
- MDMA með samtalsmeðferð: 23,7 stig.
- Lyfleysa með sömu samtalsmeðferð: 14,8 stig.
Munurinn var 8,9 stig MDMA-hópnum í hag og tölfræðilega marktækur (p < 0,001). [9]
Hvað segja rannsóknarsamantektir?
Kerfisbundin rannsóknarsamantekt frá 2026 bendir til þess að MDMA ásamt samtalsmeðferð dragi meira úr áfallastreitueinkennum til skamms tíma en meðferðin sem samanburðarhópar fengu. Vissa gagnanna var þó metin lítil. [10]
Því er enn óvíst hversu mikill ávinningurinn yrði í almennri heilbrigðisþjónustu og hversu lengi hann héldist. Samantektin staðfestir heldur ekki að MDMA með samtalsmeðferð sé árangursríkara en viðurkennd lyfjameðferð eða áfallamiðuð sálmeðferð. [10]
Nánar: MDMA-samantekt
Yfirlit Sevchik og félaga, birt í október 2026, tók saman sex slembirannsóknir. Allar voru styrktar af MAPS og fylgdu meðferðarlíkani samtakanna.
Höfundar mátu vissu gagnanna litla samkvæmt GRADE, kerfi til að meta hversu mikið má treysta rannsóknarniðurstöðum. Þar skiptu meðal annars eftirfarandi atriði máli:
- Þátttakendur gátu oft áttað sig á hvort þeir fengu MDMA eða samanburðarefni. Væntingar gætu því hafa haft áhrif á niðurstöðurnar.
- Margir höfðu notað MDMA áður, sem gæti einnig haft áhrif á væntingar og hversu vel hópurinn endurspeglar fólk sem leitar meðferðar almennt.
- Allar rannsóknirnar komu úr sömu rannsóknaráætlun. Ekki er víst að sambærilegur árangur fengist með annarri meðferðarumgjörð í almennri þjónustu.
Greining Hieronymus og félaga frá 2025 bar saman rannsóknir á psilocybin, SSRI-lyfjum og esketamíni við þunglyndi. Þunglyndiseinkenni minnkuðu minna í samanburðarhópum psilocybin-rannsóknanna en í samanburðarhópum hinna rannsóknanna. [11]
Stærri munur milli meðferðarhóps og samanburðarhóps getur því að hluta tengst minni bata í samanburðarhópnum. Hann sýnir ekki sjálfkrafa að meðferðin sé öflugri en meðferðir sem prófaðar voru í öðrum rannsóknum. [11]
Nánar: samanburður
Greiningin náði til 17 rannsókna: fjögurra á psilocybin, tveggja á esketamíni og ellefu á SSRI-lyfjum. Þetta var óbeinn samanburður milli rannsókna, ekki rannsókn þar sem þátttakendum var slembiraðað á milli þessara meðferða.
Höfundarnir nefna meðal annars ólíka þátttakendahópa, væntingar og erfiðleika við að halda meðferðinni blindri sem mögulegar skýringar á muninum. Greiningin gat þó ekki skorið úr um hvað olli honum.
Niðurstöðurnar vekja því spurningar um hvort ávinningur psilocybin sé ofmetinn í samanburði við aðrar meðferðir. Þær sýna hins vegar ekki einar og sér hvaða meðferð sé árangursríkust. [11]
Ávinningur, álag og meðferðarval
Við val á meðferð þarf að vega saman mögulegan ávinning, áhættu og það sem meðferðin krefst í daglegu lífi. Markmiðið er ekki aðeins að draga úr einkennum heldur líka að bæta líðan og færni. Ákvörðunin er tekin í samráði við meðferðaraðila, út frá þörfum, óskum og fyrri reynslu viðkomandi. [1]
Meðal þess sem þarf að ræða er:
- Aukaverkanir og öryggi: Til dæmis áhrif á svefn, kynlíf og þyngd, ásamt mögulegum fráhvarfseinkennum þegar lyfjameðferð er minnkuð eða henni hætt.
- Tími og fyrirkomulag: Dagleg lyfjataka, regluleg samtöl eða meðferðarlotur undir eftirliti gera ólíkar kröfur. Einnig þarf að huga að undirbúningi, eftirfylgd og kostnaði.
- Áframhaldandi stuðningur: Fáar lyfjagjafir tryggja ekki varanlegan bata. Frekari lyfjameðferð, sálmeðferð eða annar stuðningur getur verið nauðsynlegur.
Ekki hætta eða breyta ávísuðum lyfjum til að prófa annað efni án samráðs við lækni. [12]
Lestu áfram
Farðu aftur í rannsóknayfirlitið eða lestu áfram um sögu og menningu hugvíkkandi efna.
Heimildir og yfirferð
- NICE. Depression in adults: treatment and management (NG222). Meðferðarleiðbeiningar um þunglyndi hjá fullorðnum.
- Cipriani o.fl. (2018). Comparative efficacy and acceptability of 21 antidepressant drugs for the acute treatment of adults with major depressive disorder. The Lancet. Kerfisbundið yfirlit og netgreining á 522 slembirannsóknum.
- Carhart-Harris o.fl. (2021). Trial of Psilocybin versus Escitalopram for Depression. The New England Journal of Medicine. Beinn sex vikna samanburður.
- Erritzoe o.fl. (2024). Effect of psilocybin versus escitalopram on depression symptom severity in patients with moderate-to-severe major depressive disorder: observational 6-month follow-up of a phase 2, double-blind, randomised, controlled trial. eClinicalMedicine. Sex mánaða eftirfylgd.
- Reif o.fl. (2023). Esketamine Nasal Spray versus Quetiapine for Treatment-Resistant Depression. The New England Journal of Medicine. ESCAPE-TRD; styrkt af Janssen EMEA.
- McIntyre o.fl. (2024). Safety and tolerability of esketamine nasal spray versus quetiapine extended release in patients with treatment resistant depression. European Neuropsychopharmacology. Öryggisgreining úr sömu ESCAPE-TRD-rannsókn.
- National Center for PTSD / VA. Clinician’s Guide to Medications for PTSD. Lyfjameðferð samkvæmt VA/DoD-leiðbeiningunum frá 2023.
- Brady o.fl. (2000). Efficacy and safety of sertraline treatment of posttraumatic stress disorder: a randomized controlled trial. JAMA. Tólf vikna samanburður við lyfleysu.
- Mitchell o.fl. (2023). MDMA-assisted therapy for moderate to severe PTSD: a randomized, placebo-controlled phase 3 trial. Nature Medicine. MAPP2-rannsóknin.
- Sevchik o.fl. (2026). A living systematic review, meta-analysis, and open data resource of trials of MDMA-assisted therapy for PTSD. Neuropsychopharmacology. Birt 11. október 2026; heimildaleit lauk 25. nóvember 2025. Vissa gagnanna metin lítil samkvæmt GRADE.
- Hieronymus o.fl. (2025). Control Group Outcomes in Trials of Psilocybin, SSRIs, or Esketamine for Depression: A Meta-Analysis. JAMA Network Open. Greining á niðurstöðum samanburðarhópa.
- NHS. Antidepressants. Lyfjaflokkar, aukaverkanir og meðferðarlengd.
- National Center for PTSD / VA. Overview of Psychotherapy for PTSD. Áfallamiðuð sálmeðferð samkvæmt VA/DoD-leiðbeiningunum frá 2023.
- Lyfjastofnun. Skiptiskrá og samheitalyf. Jafngildi lyfja og útskipti í apóteki.
- Sérlyfjaskrá. Cipralex: lyfjaupplýsingar og fylgiseðill. Upplýsingar um escítalópram.
- European Medicines Agency (EMA). Spravato. Upplýsingar um esketamín, viðurkennda notkun og eftirlit.
- Goodwin o.fl. (2022). Single-Dose Psilocybin for a Treatment-Resistant Episode of Major Depression. The New England Journal of Medicine. Rannsókn á psilocybin hjá 233 þátttakendum.
Ritstjórnarleg yfirferð: . Hér eru valin rannsóknardæmi og leiðbeiningar. Tölur miðast við þátttakendur, meðferð og eftirfylgd viðkomandi rannsóknar og segja ekki fyrir um árangur einstaklings.
Ritstjórn og þjónustutengsl. Þessi fræðsluvefur kynnir einnig samtalsþjónustu hjá Allir sáttir. Samanburðurinn er ekki árangursmat á þeirri þjónustu.
Tengt efni
- Ítarlegar rannsóknir
Rannsóknarsnið, niðurstöður og takmarkanir einstakra rannsókna. - Langtímaárangur og endurtekin meðferð
Hvað eftirfylgdarrannsóknir segja um varanleika bata og þörf fyrir frekari meðferð. - Hugvíkkandi efni á Íslandi
Reglur, skráð lyf, klínískar rannsóknir og aðgengi að meðferð hér á landi.