Forsíða / Öryggi og skaðaminnkun
Öryggi og skaðaminnkun
Hér eru hagnýtar upplýsingar um áhættu hugvíkkandi efna og leiðir til að draga úr skaða. Efnið er ætlað fólki sem íhugar notkun utan heilbrigðisþjónustu og þeim sem vilja veita stuðning. Markmiðið er að miðla skýrum upplýsingum án fordæmingar.
Heilsufar, lyf, innihald efna, magn og aðstæður skipta máli. Undirbúningur og stuðningur geta dregið úr áhættu, en tryggja ekki öryggi.
Líður þér illa eftir reynslu? Aðstoð, heilbrigðismat og næstu skref.
Skýrari upplýsingar. Meðvitaðri ákvarðanir
Ekki vera einn meðan áhrifa gætir. Hafðu hjá þér edrú stuðningsaðila sem þú treystir, þekkir áhrif viðkomandi efnis og getur verið til staðar allan tímann. Viðkomandi þarf að kunna fyrstu hjálp og vita hvenær á að kalla eftir aðstoð.
Farið fyrirfram yfir heilsufar, lyf, innihald efnisins og hvernig þið bregðist við ef eitthvað fer úrskeiðis.
Við grun um ofskömmtun eða alvarlega eitrun: hringdu í 112.
Á þessari síðu
Efnisyfirlit
Hvenær þarf tafarlausa hjálp?
Hringdu strax í 112 ef manneskja:
- missir meðvitund,
- andar óeðlilega eða á erfitt með öndun,
- fær krampa eða brjóstverk,
- verður mjög heit, sérstaklega með rugli eða vöðvastífleika,
- er svo rugluð eða æst að hún stofnar sér eða öðrum í bráða hættu.
Ekki bíða eftir að fleiri hættumerki komi fram. [1] [49]
- Hringdu og fylgdu leiðbeiningum. Segðu fyrst hvar þið eruð og settu símann á hátalara. Lýstu einkennunum og segðu hvað gæti hafa verið tekið, hvenær og í hvaða magni. Hafðu umbúðir tiltækar ef þær eru til.
- Athugaðu viðbrögð og öndun. Ef manneskjan er meðvitundarlaus en andar eðlilega skaltu setja hana í hliðarlegu og fylgjast með öndun. Ef hún andar ekki eðlilega skaltu hefja endurlífgun samkvæmt leiðbeiningum neyðarvarðar. Andköf teljast ekki eðlileg öndun. [47]
- Við krampa: fjarlægðu hættulega hluti, verndaðu höfuðið og taktu tímann. Ekki halda manneskjunni niðri eða setja neitt í munninn. [48]
- Við ofhita: stöðvaðu áreynslu og færðu viðkomandi á svalari stað ef það er öruggt. Kældu húðina með svölu vatni og lofti meðan hjálp er á leiðinni. Mikil vatnsdrykkja kemur ekki í stað kælingar og getur verið hættuleg. [49]
Ekki skilja manneskjuna eina. Ekki framkalla uppköst eða gefa henni neitt um munn ef hún er sljó, rugluð eða með skerta meðvitund. [37]
Samhengið skiptir máli
Upplifun af hugvíkkandi efnum mótast af fleiru en efninu sjálfu. Hugarástand, væntingar, fyrri reynsla og aðstæður geta haft áhrif á hvernig fólki líður. Sama manneskja getur því upplifað sama efni með ólíkum hætti á mismunandi tímum.
Á ensku er talað um set and setting: annars vegar hugarástand og það sem manneskjan kemur með inn í reynsluna, hins vegar umhverfið og stuðninginn í kringum hana. [3]
Set: innri líðan
Hugarástand og væntingar
Hvernig þér líður fyrir reynsluna getur haft áhrif á upplifunina. Tilfinningar, væntingar, fyrri reynsla og heilsufar skipta þar máli. Forvitni, tilhlökkun eða ótti geta orðið hluti af því sem þú upplifir.
Ástæðan fyrir notkuninni og hugmyndir um hvað muni gerast geta einnig mótað væntingar þínar. Undirbúningur felst meðal annars í að ræða þær, án þess að gera ráð fyrir ákveðinni upplifun eða niðurstöðu. [3]
Setting: ytri aðstæður
Umhverfi og stuðningur
Umhverfið getur haft áhrif á hvernig þér líður meðan á reynslunni stendur. Þar skipta meðal annars máli rýmið, lýsing, hljóð, tónlist og fólkið í kringum þig. Ókunnugar aðstæður eða óvæntar truflanir geta aukið óöryggi.
Sambandið við þau sem veita stuðning skiptir líka máli. Traust, virðing og skýr samskipti geta hjálpað þér að láta vita hvernig þér líður og biðja um það sem þú þarft. [3] [4]
Hvers vegna skiptir þetta svona miklu máli?
Hugvíkkandi efni geta gert tilfinningar ákafari og breytt skynjun á sjálfum sér og umhverfinu. Við slíkar aðstæður geta orð og viðbrögð annarra haft mikil áhrif á hvernig reynslan er túlkuð. Í klínískum rannsóknum er því lögð áhersla á mat á heilsufari, undirbúning, traust tengsl og stuðning meðan áhrifa gætir. [4]
Stuðningur á að skapa öryggi og rými fyrir eigin reynslu. Sá sem veitir hann á að hlusta og virða mörk, án þess að þrýsta á ákveðna upplifun, minningu eða trúarlega túlkun.
Vandaður undirbúningur og stuðningur geta dregið úr sumum áhættuþáttum, en útiloka ekki líkamlegar aukaverkanir, milliverkanir eða langvarandi vanlíðan. Erfið reynsla þýðir ekki að þú hafir hugsað rangt eða undirbúið þig illa. Sjá nánar um skaðaminnkun og aðstoð.
Um heimildina: Leiðbeiningarnar frá 2008 fjalla einkum um rannsóknir á klassískum hugvíkkandi efnum. Þær eru ekki sjálfkrafa fullnægjandi öryggisleiðbeiningar fyrir MDMA eða aðrar tegundir efna. [4]
Fyrir, meðan og eftir: hagnýtar spurningar
Hér eru svör við algengum spurningum um undirbúning, stuðning og líðan eftir reynslu. Veldu spurningu til að lesa nánar.
- Fyrir reynslu: heilsufar, lyf, innihald efna og undirbúningur.
- Meðan áhrifa gætir: edrú stuðningur og viðbrögð við vanlíðan.
- Eftir reynslu: svefn, líðan, úrvinnsla og aðstoð ef erfiðleikar halda áfram.
Þú mátt alltaf hætta við, fresta eða hafna meira magni.
Við bráð hættumerki skaltu hringja í 112. Sjá leiðbeiningar um fyrstu viðbrögð.
Er notkun utan rannsóknar sambærileg við meðferðarrannsókn?
Nei. Í meðferðarrannsóknum er heilsufar þátttakenda metið og ákveðin skilyrði gilda um hverjir geta tekið þátt. Innihald og magn efnisins eru skilgreind, fylgst er með líðan og veittur stuðningur og eftirfylgd samkvæmt rannsóknaráætlun.
Niðurstöðurnar eiga við um fólkið og aðstæðurnar sem voru rannsakaðar. Þær segja því ekki sjálfkrafa til um ávinning eða öryggi við notkun utan þessarar umgjarðar. [3]
Hvenær er ástæða til að sleppa eða fresta?
Fáðu læknismat áður en þú íhugar notkun ef þú hefur sögu um geðrof, oflæti, geðhvarfasýki, flog eða hjarta- og æðasjúkdóm. Segðu einnig frá fjölskyldusögu um geðrof eða geðhvarfasýki. Fólk með slíkan bakgrunn er oft útilokað frá rannsóknum og því er þekking á öryggi við þessar aðstæður takmörkuð. [3] [4]
Frestaðu ef þú ert veikur, illa sofinn eða í miklu tilfinningalegu ójafnvægi. Sama á við ef þú finnur fyrir þrýstingi frá öðrum eða ert óviss um hvort þú viljir þetta sjálfur. Ekki reyna að meðhöndla bráðan geðrænan vanda með efnunum á eigin spýtur. [3]
Forðastu notkun utan heilbrigðisþjónustu á meðgöngu og við brjóstagjöf. Þekking á áhrifum á fóstur og barn er takmörkuð. [13]
Hvað ef ég tek lyf eða önnur efni?
Farðu yfir lyf, bætiefni og önnur vímuefni með lækni eða lyfjafræðingi. Nefndu líka lausasölulyf. Ekki hætta ávísuðum lyfjum eða gera lyfjahlé á eigin spýtur til að nota hugvíkkandi efni. Fráhvarf og versnun veikinda geta sjálf skapað hættu.
- MAO-hemlar: Ekki blanda þeim við MDMA eða 5-MeO-DMT; það getur valdið alvarlegri, jafnvel lífshættulegri eitrun. Sum plöntuefni í ayahuasca og skyldum blöndum eru MAO-hemlar. Alvarlegri eitrun eftir harmalín og 5-MeO-DMT hefur verið lýst í sjúkratilfelli. [1] [10] [44]
- Litíum: Lýst hefur verið krömpum við samhliða notkun litíums og klassískra hugvíkkandi efna. Gögnin byggjast á sjálfvöldum netfrásögnum og segja ekki hversu algeng áhættan er. Ekki gera hlé á litíummeðferð til að prófa efnin. [46]
- Þunglyndislyf og MDMA: Sum þunglyndislyf geta breytt eða deyft upplifunina. Ekki bregðast við því með meira MDMA. Milliverkanir ráðast af viðkomandi lyfi; þunglyndislyf eru ekki einn einsleitur flokkur. [1]
- Áfengi, kannabis og önnur vímuefni: Blöndun getur gert áhrifin ófyrirsjáanlegri og aukið áhættu. Ekki nota annað efni til að reyna að „jafna út“ áhrif þess fyrra. [45]
Milliverkanayfirlit TripSit getur bent á mögulega hættu, en kemur ekki í stað mats læknis eða lyfjafræðings. Grænn reitur eða óskráð samsetning staðfestir ekki öryggi. [39]
Hvað geta efnapróf sagt um innihald?
Útlit, lykt eða bragð staðfesta ekki innihald. Tafla, duft eða vökvi getur innihaldið annað efni eða annað magn en sagt er. [7]
Efnagreining getur veitt upplýsingar um innihald, en niðurstöðurnar ráðast af aðferðinni. Greining á rannsóknarstofu getur gefið ítarlegri upplýsingar en heimapróf. Ekki allar aðferðir mæla styrk eða greina öll íblöndunarefni. [38] [43]
Heimapróf hafa takmarkanir. Litahvarfspróf getur bent til ákveðinna efna eða efnaflokka, en staðfestir ekki hreinleika eða magn. Prófunarstrimlar leita að afmörkuðum efnum; neikvætt svar útilokar ekki önnur hættuleg efni. Vænt niðurstaða tryggir því ekki öryggi. [38]
Fylgdu leiðbeiningum framleiðanda. Prófunarvökvar geta verið ætandi og ekki má neyta sýnis sem hefur snert þá. [38]
Um sveppi: Ekki treysta eingöngu á ljósmynd eða smáforrit við tegundagreiningu. Eitraðir sveppir geta líkst hugvíkkandi sveppum og ranggreining getur valdið alvarlegri eitrun. [5]
Hvernig undirbúum við staðinn, tímann og neyðaráætlunina?
Staðurinn: Veljið rólegt, kunnuglegt rými þar sem ekki þarf að sinna skyldum eða taka á móti óvæntum gestum. Dragið úr slysahættu: forðist umferð, svalir, háa staði, eld, beitta hluti og opið vatn. Sleppið sundi, baði og heitum potti meðan áhrifa gætir. Geymið efni þar sem börn, gæludýr og aðrir komast ekki í þau. [4] [13]
Tíminn: Gerið ráð fyrir nægum tíma fyrir áhrifin, hvíld og svefn eftir á. Skipuleggið heimferð án aksturs þess sem tekur efnið. Að finna minna fyrir áhrifunum þýðir ekki sjálfkrafa að dómgreind og aksturshæfni séu komin í lag. [11] [12] [35]
Neyðaráætlunin: Hafið hlaðinn síma, nákvæmt heimilisfang og greiðan aðgang fyrir sjúkralið. Edrú stuðningsaðili þarf að vita hvað var tekið, hvenær og í hvaða magni, auk upplýsinga um lyf og önnur efni. Ákveðið fyrirfram hvern megi hafa samband við ef þörf krefur. [37]
Hvað gerir stuðningsaðilinn ef ótti eða skelfing tekur yfir?
Haltu ró þinni og vertu til staðar. Dragðu úr hávaða og bjóddu rólegri stað ef hægt er. Talaðu hægt og skýrt: „Ég er hér hjá þér. Þú hefur tekið efni. Við skulum taka eitt augnablik í einu.“ Bjóddu rólega, eðlilega öndun án þess að þrýsta á.
Hlustaðu og gefðu val. Spyrðu áður en þú snertir manneskjuna og kannaðu hvort hún vilji breyta tónlist, lýsingu eða hafa þögn. Forðastu rökræður um skynjanir og ekki þröngva þinni túlkun upp á reynsluna. Ekki krefjast þess að hún „gefi sig á vald“ upplifuninni eða halda því fram að þjáning sé nauðsynleg til bata. [41]
Ekki bæta við vímuefnum eða gefa lyf annarra til að stöðva áhrifin. Leitaðu hjálpar ef rugl versnar eða ekki tekst að halda aðstæðum öruggum. Við meðvitundarleysi, öndunarerfiðleika eða önnur bráð hættumerki skaltu hringja strax í 112 og fylgja leiðbeiningum neyðarvarðar. [1] [44]
Af hverju þarf að gæta að hita og vökva við MDMA-notkun?
MDMA getur hækkað líkamshita og truflað hitastjórnun. Heitt, þröngt rými, mikil áreynsla og önnur örvandi efni auka áhættuna. Taktu regluleg hlé frá dansi eða annarri áreynslu á svölum stað. Ofhiti getur þó líka komið fram án mikillar áreynslu eða umhverfishita. Við mikinn hita þarf að stöðva áreynslu og kæla sig, fremur en að halda áfram að dansa og bæta sífellt við drykkju. [49]
Drekktu í litlum sopum eftir aðstæðum og þorsta. Gróft viðmið er um 250 ml á klukkustund við litla áreynslu og allt að um 500 ml við dans og svitamissi. Þetta er ekki tryggt öruggt magn eða kvóti sem þarf að klára. Ekki þvinga niður vökva til að ná ákveðnu magni. [1] [70]
Við svitamissi getur íþróttadrykkur með söltum, til dæmis Gatorade, verið valkostur. Saltainnihaldið gerir þó ekki mikla vökvadrykkju örugga og drykkurinn er ekki meðferð við ofhita eða vatnseitrun. [50] [71]
Bæði vökvaskortur og of mikil vatnsdrykkja geta verið hættuleg. MDMA getur valdið því að líkaminn haldi í vatn og mikil vatnsdrykkja getur lækkað natríum í blóði hættulega. Ekki reyna að meðhöndla vanlíðan með miklu vatni eða salti. [1] [50]
Hringdu strax í 112 við mikinn líkamshita, rugl, vöðvastífleika, yfirlið eða krampa. Höfuðverkur, uppköst og óvenjulegur sljóleiki geta einnig bent til alvarlegs vanda. Ekki bíða eftir að viðkomandi „svitni þetta út“ eða sofi ástandið af sér. Sjá bráð hættumerki og fyrstu viðbrögð. [1] [50]
Hvenær á að hringja í 112?
Hringdu strax í 112 við meðvitundarleysi, óeðlilega eða erfiða öndun, krampa, brjóstverk, mikinn líkamshita eða hegðun sem skapar bráða hættu. Ekki bíða eftir fleiri einkennum.
Fylgdu leiðbeiningum neyðarvarðar. Hafðu upplýsingar um efnið, magn, tímasetningu og önnur lyf eða efni tiltækar ef hægt er, en ekki tefja símtalið til að afla þeirra.
Sjá hættumerki og fyrstu viðbrögð ofar á síðunni.
Eitrunarmiðstöð veitir ráðgjöf í 543 2222, allan sólarhringinn. Við bráða hættu skaltu hringja fyrst í 112.
Hvað þarf að hafa í huga eftir á?
Gefðu þér tíma til að jafna þig. Gerðu ráð fyrir svefni, mat, ró og svigrúmi eftir reynsluna. Gott er að einhver sem þú treystir hafi samband við þig næsta dag og spyrji hvernig þér líði. Bíddu með stórar ákvarðanir og ekki reyna að laga vanlíðan með frekari vímuefnanotkun.
Leitaðu aðstoðar ef erfiðleikar halda áfram eða trufla daglegt líf. Það á meðal annars við um kvíða, svefntruflanir, óraunveruleikatilfinningu eða skyntruflanir. Þú þarft ekki að bíða eftir að vandinn verði langvinnur. [3]
Óvenjumikil orka ásamt lítilli svefnþörf, ofsóknarkennd eða skert raunveruleikatengsl kalla á heilbrigðismat sem fyrst. Við bráða hættu skaltu hringja í 112. [13]
Úrvinnslusamtal getur hjálpað þér að skoða reynsluna, án þess að allar hugmyndir eða minningar úr henni séu teknar sem staðreyndir. Túlkun á erfiðleikunum sem „heilunarferli“ má ekki tefja heilbrigðisþjónustu sem þú þarft.
Hvernig á að nálgast fyrstu reynslu og forðast viðbótarskammta?
Ef þú ákveður að prófa skaltu fara varlega og forðast blöndun. Veldu kunnuglegt rými og hafðu edrú stuðningsaðila hjá þér. Ekki miða magn við það sem aðrir þola. Skráið hvað var tekið, magnið og tímann. Þú mátt alltaf segja „þetta er nóg“. [40]
Ekki bæta við vegna þess að áhrifin láta á sér standa. Sérstaklega eftir inntöku um munn geta þau komið seinna en búist var við. Viðbótarskammtur getur þá bæst við þann fyrri áður en full áhrif hans koma fram. Við fyrstu reynslu er varfærnara að ákveða fyrirfram að bæta engu við. [1]
Lítið magn er ekki öryggispróf. Þótt engin óþægindi komi fram útilokar það ekki alvarleg viðbrögð við meira magni eða síðar. Að prófa efni á sjálfum sér staðfestir heldur ekki innihald þess. [40]
Hvað þarf edrú stuðningsaðili að kunna og gera?
Veldu stuðningsaðila sem þú treystir og hefur undirbúið sig. Eigin reynsla af hugvíkkandi efnum nægir ekki ein og sér. Viðkomandi þarf að þekkja áhrif og áhættu efnisins, geta brugðist rólega við vanlíðan og hafa lært fyrstu hjálp.
Stuðningsaðilinn þarf að:
- Vera edrú, vakandi og til staðar allan tímann, án annarra verkefna sem trufla.
- Þekkja hættumerkin og geta hringt í 112 og fylgt leiðbeiningum neyðarvarðar.
- Vita hvað var tekið, í hvaða magni og hvenær, ásamt upplýsingum um lyf og önnur efni.
- Gæta að umhverfi og líðan, hjálpa við einfaldar þarfir og virða mörk og samþykki.
Ræðið fyrirfram snertingu, friðhelgi, neyðarsamband og hvenær stuðningi lýkur. Ekki skilja manneskju eftir eina ef hún er enn mjög ringluð eða skert, né fela hana umsjá einhvers sem er líka undir áhrifum. [4] [41] [47]
Við 5-MeO-DMT þarf sérstaklega að gera ráð fyrir snöggri meðvitundarskerðingu og uppköstum. Stuðningur í síma kemur ekki í stað hæfs stuðnings á staðnum. [44]
Hvað eru rauð flögg hjá leiðbeinanda eða í seremóníu?
Heiti eins og „leiðbeinandi“, „shaman“ eða „facilitator“ segja ekki ein og sér til um menntun eða hæfni. Spyrðu um þjálfun, mat á heilsufari og lyfjum, edrú stuðning, neyðarviðbrögð og eftirfylgd.
Hættu við ef:
- þrýst er á þig að taka meira eða blanda saman efnum,
- þér er sagt að hætta ávísuðum lyfjum án samráðs við lækni,
- alvarleg hættumerki eru afgreidd sem „hreinsun“ eða nauðsynlegur hluti bata,
- þér er meinað að hafa samband við aðra eða kalla eftir heilbrigðisþjónustu,
- mörk þín eru hunsuð eða þú ert beittur þrýstingi til að sætta þig við óvelkomna snertingu.
Samþykki fyrir þátttöku er ekki samþykki fyrir nekt, snertingu eða kynferðislegum athöfnum. Þú mátt skipta um skoðun og segja nei. Kynferðisleg snerting á ekki heima í hlutverki leiðbeinanda eða meðferðaraðila.
Fólk undir áhrifum getur verið sérstaklega viðkvæmt fyrir þrýstingi. Ábyrgur stuðningur byggist á skýrum mörkum og virðingu fyrir sjálfræði þínu. [4] [8] [41]
Frekari upplýsingar og stuðningur
Íslenskar upplýsingar og þjónusta
- Skaðaminnkunarbókin — íslensk fræðsla um efni, áhrif og skaðaminnkun. Vefurinn er í þróun.
- Rauði krossinn: Frú Ragnheiður og Ylja — upplýsingar um íslenska skaðaminnkunarþjónustu og hverjum hún er ætluð.
- Eitrunarmiðstöð Landspítala — ráðgjöf við grun um eitrun í 543 2222, allan sólarhringinn.
Efnapróf og efnagreining
- DanceSafe — efnapróf og takmarkanir þeirra. Einnig fræðsla um MDMA og hættumerki.
- The Loop — bresk efnagreining, skaðaminnkunarfræðsla og viðvaranir.
Stuðningur og undirbúningur
- TripSit — efnaupplýsingar, milliverkanayfirlit og jafningjastuðningur sjálfboðaliða á netinu.
- Zendo Project — fræðsla og þjálfun í stuðningi við erfiða upplifun. Sjá meginreglur stuðningsins.
Upplýsingar um efni
- Erowid — upplýsingar um magn og einstaklingsmun. Vefurinn geymir einnig reynslufrásagnir.
- Drug Science — fræðsla um 5-MeO-DMT, áhrif og áhættu.
Upplýsingasíður og jafningjastuðningur koma ekki í stað einstaklingsbundins mats læknis eða lyfjafræðings. Við bráða hættu skaltu hringja í 112.
Undirbúningur og úrvinnsla
Undirbúningur getur falist í að ræða væntingar, spurningar og mörk. Eftir reynslu má gefa sér tíma til að setja orð á það sem gerðist og skoða hvernig það tengist daglegu lífi. Þú þarft ekki að komast strax að niðurstöðu um merkingu reynslunnar.
Áður · skilningur og væntingar
Í undirbúningssamtali má ræða hvað vekur áhuga þinn, hverju þú vonast eftir og hvað veldur óöryggi. Þar er líka hægt að skoða hvað er vitað, hvað er óvíst og hvaða upplýsingar eða faglega ráðgjöf þú þarft áður en þú tekur ákvörðun.
Samtalið á að gefa þér svigrúm til að ákveða þig, fresta eða hætta við.
Eftir · orð á reynsluna
Eftir reynslu má gefa rými fyrir minningar, tilfinningar og það sem situr helst eftir. Hvað var erfitt, hvað var merkingarbært og hvað er enn óljóst?
Þú ræður hvað þú vilt ræða og á hvaða hraða. Það þarf ekki að finna eina rétta skýringu eða komast strax að niðurstöðu um hvað reynslan þýðir.
Áfram · daglegt líf
Þegar frá líður má skoða hvort eitthvað úr reynslunni sé þess virði að hlúa að í daglegu lífi. Það gæti tengst hvíld, venjum, samskiptum eða því hvernig þú kemur fram við sjálfan þig.
Ef þú vilt breyta einhverju geturðu byrjað á litlu, raunhæfu skrefi og séð hvernig það reynist. Það þarf ekki að fylgja reynslunni eftir með stórum ákvörðunum eða róttækum breytingum.
Stuðningur og skýr mörk
Stuðningur á að taka mið af þínum þörfum og mörkum. Þegar þú velur ráðgjafa eða meðferðaraðila er sjálfsagt að spyrja um menntun, reynslu og vinnubrögð. Skýrar upplýsingar um þjónustuna hjálpa þér að meta hvort hún henti þér og hvers þú getur vænst.
Hvernig gæti úrvinnsla litið út?
Samtal um reynsluna getur tekið ýmsar áttir. Hér eru dæmi um spurningar sem mætti ræða. Þú velur hvað þú vilt fjalla um og á hvaða hraða.
- Setja orð á reynsluna. Hvað situr helst eftir? Var eitthvað erfitt, merkingarbært eða óljóst?
- Skoða mögulegar túlkanir. Hvernig skilur þú reynsluna núna? Gætu fleiri skýringar komið til greina? Minningar og myndir úr reynslunni eru ekki sjálfkrafa staðfesting á því að atburðir hafi átt sér stað.
- Tengja við daglegt líf. Er eitthvað sem þú vilt hlúa að eða prófa? Það gæti verið að gefa þér meiri hvíld eða eiga samtal við einhvern nákominn.
Spurningarnar hér eru dæmi um samtal, ekki lýsing á meðferð við sjúkdómi. Ef svefntruflanir, skyntruflanir eða vanlíðan halda áfram er rétt að leita mats hjá heilbrigðisstarfsfólki. [3]
Spurningar til ráðgjafa eða meðferðaraðila
- Hvaða menntun, þjálfun og reynslu hefur þú? Ef þú veitir heilbrigðisþjónustu, hefur þú starfsleyfi og á hvaða sviði?
- Hefur þú lokið sérstöku námi eða þjálfun í meðferð með hugvíkkandi efnum? Ef svo er, hjá hvaða skóla eða stofnun?
- Hvað felst í þjónustunni og hvað fellur utan hennar?
- Hvernig er samþykkis míns aflað? Get ég hafnað snertingu, sleppt umræðuefni eða stöðvað samtalið?
- Hvaða upplýsingar eru skráðar, hver hefur aðgang að þeim og hvernig er trúnaði háttað?
- Hvernig bregstu við ef líðan mín versnar? Hvert get ég leitað ef ég þarf aðra aðstoð?
- Hvaða eftirfylgd er í boði og hvert get ég leitað með athugasemd eða kvörtun?
Í hugvíkkandi rannsóknum er lögð áhersla á að þátttakendur fái skýrar upplýsingar um áhættu og veiti upplýst samþykki. [8] Spurningarnar hér að ofan eru ætlaðar til að auðvelda þér að velja stuðning við hæfi.
Ítarlegur samanburður á áhættu
Áhætta getur verið ólík eftir efni, heilsufari og aðstæðum. Einnig skiptir máli hvað er borið saman: fíkn, eitranir, slys eða langvinn einkenni. Efni sem hefur minni áhættu á einum þessara þátta getur haft meiri áhættu á öðrum.
Í áhættutöflunum má skoða þessa þætti fyrir hugvíkkandi efni, MDMA, ketamín og önnur vímuefni. Þar fylgja heimildir og skýringar á því hvað má lesa úr samanburðinum.
Magn og tímalengd
Í yfirlitinu má finna upplýsingar um magn, hvenær áhrif byrja og hversu lengi þau geta varað. Þar er líka útskýrt hvernig efnisform og notkunarleið tengjast þessum viðmiðum og hvaða óvissa fylgir þeim.
Viðmiðin eru almennar upplýsingar, ekki einstaklingsbundnar skammtaráðleggingar. Þyngd efnis segir ekki ein og sér til um virkt innihald eða hversu sterk áhrifin verða.
- Psilocybin: magn og tími (form og fyrirvarar)
- Sveppir: magn og tími (form og fyrirvarar)
- MDMA: magn og tími (form og fyrirvarar)
- Meskalín: magn og tími (form og fyrirvarar)
- 5-MeO-DMT: magn og tími (form og fyrirvarar)
- LSD: magn og tími (form og fyrirvarar)
- N,N-DMT: magn og tími (form og fyrirvarar)
- Ketamín: magn og tími (form og fyrirvarar)
Samtal um það sem situr eftir
Á allirsattir.is geturðu kynnt þér samtalsþjónustu um undirbúning og úrvinnslu hugvíkkandi reynslu. Þar finnurðu nánari upplýsingar og getur bókað tíma.
Lestu áfram
Þú getur skoðað tengt efni hér fyrir neðan eða farið aftur á forsíðuna til að velja annað viðfangsefni.
Heimildir
- Public Health Scotland / NHS inform. MDMA (Ecstasy).
- Stjórnarráð Íslands. Ofskömmtun – upplýsingar og viðbrögð.
- NCCIH. Psilocybin for Mental Health and Addiction: What You Need To Know.
- Johnson, Richards og Griffiths (2008). Human hallucinogen research: guidelines for safety.
- Health Canada. Psilocybin and psilocin (Magic mushrooms).
- NHS. Antidepressants.
- North London NHS. Ecstasy / MDMA.
- Johns Hopkins Medicine (2025). Psychedelics research: evidence-based messaging, informed consent and adverse events surveillance.
- Cubała o.fl. (2026). GH001 vs Placebo in Patients With Treatment-Resistant Depression: A Randomized Clinical Trial. JAMA Psychiatry. DOI: 10.1001/jamapsychiatry.2026.0096.
- Brush, Bird og Boyer (2004). Monoamine oxidase inhibitor poisoning resulting from Internet misinformation on illicit substances. Journal of Toxicology: Clinical Toxicology, 42(2), 191–195. DOI: 10.1081/CLT-120030949. Sjúkratilfelli, ekki mat á tíðni eitrunar.
- Klaiber o.fl. (birt á netinu 2024). Safety pharmacology of acute mescaline administration in healthy participants. British Journal of Clinical Pharmacology. DOI: 10.1111/bcp.16349. Samantekt gagna úr tveimur stýrðum rannsóknum.
- Ley o.fl. (2023). Comparative acute effects of mescaline, lysergic acid diethylamide, and psilocybin in a randomized, double-blind, placebo-controlled cross-over study in healthy participants. Neuropsychopharmacology, 48, 1659–1667. DOI: 10.1038/s41386-023-01607-2.
- NIH. Psychedelic and Dissociative Drugs.
- Kopra o.fl. (2025; birt á netinu 2024). Psychedelic-related deaths in England, Wales and Northern Ireland (1997–2022). Progress in Neuro-Psychopharmacology and Biological Psychiatry, 136, 111177. DOI: 10.1016/j.pnpbp.2024.111177. Frumrannsókn á skýrslum dánardómstjóra; ákvarðar hvorki banamörk né áhættu á hverja notkun.
- Pullen o.fl. (2025). Fatalities following DMT use: two case reports and a review of the literature. Sjúkratilfelli gefa ekki tíðni áhættu.
- Ermakova o.fl. (2022). A narrative synthesis of research with 5-MeO-DMT. Journal of Psychopharmacology, 36(3), 273–294. DOI: 10.1177/02698811211050543.
- Public Health Scotland (2026). Ketamine: Understanding the risks to reduce harm.
- NIAAA. Alcohol Overdose: The Dangers of Drinking Too Much.
- NIAAA. Alcohol Use Disorder: From Risk to Diagnosis to Recovery.
- National Cancer Institute. Alcohol and Cancer Risk.
- FDA. Nicotine Is Why Tobacco Products Are Addictive.
- National Cancer Institute. Harms of Cigarette Smoking and Health Benefits of Quitting.
- FDA. How to Properly Store E-Liquids and Prevent Accidental Exposure of E-Liquids to Children.
- FDA. FDA Warns Consumers About Pure and Highly Concentrated Caffeine.
- Silverman, Evans, Strain og Griffiths (1992). Withdrawal syndrome after the double-blind cessation of caffeine consumption. New England Journal of Medicine, 327, 1109–1114. DOI: 10.1056/NEJM199210153271601. Tvíblind samanburðarrannsókn á koffínfráhvarfi.
- CDC. Cannabis Frequently Asked Questions.
- CDC. Understanding Your Risk for Cannabis Use Disorder.
- NIH. Opioids.
- FDA. Boxed Warning updated to improve safe use of benzodiazepine drug class.
- NIAAA. Alcohol-Medication Interactions: Potentially Dangerous Mixes.
- Public Health Scotland / NHS inform. Cocaine.
- CDC, Division of Overdose Prevention. Stimulant Guide: Answers to Emerging Questions About Stimulants in the Context of the Overdose Epidemic in the United States. Fræðslurit heilbrigðisstofnunar um örvandi efni og ofskömmtun (PDF).
- NIDA. Commonly Abused Drugs. notkun, fíkn og heilsufarsáhætta.
- Health Canada. GHB: effects, risks, dependence and withdrawal.
- EUDA. Lysergide (LSD) drug profile.
- US EPA. About the Health Effects Fact Sheets. LD50 og takmarkanir við yfirfærslu dýragagna.
- Landspítali / Ísland.is. Eitrunarmiðstöð: símanúmer og aðgengi.
- DanceSafe. Drug Checking. takmarkanir efnagreiningar og heimaprófa.
- TripSit. Efnaupplýsingar, milliverkanir og jafningjastuðningur.
- Erowid. Psychoactive Dosages. Almenn skaðaminnkunarviðmið, ekki persónuleg skömmtun.
- Zendo Project. Meginreglur stuðnings í hugvíkkandi upplifun.
- Rauði krossinn á Íslandi. Skaðaminnkun: Frú Ragnheiður og Ylja.
- The Loop. Efnagreining og skaðaminnkun.
- Drug Science. 5-MeO-DMT: áhætta, milliverkanir og skaðaminnkun.
- The Psychedelic Society. Psilocybin: harm reduction.
- Nayak o.fl. (2021). Classic Psychedelic Coadministration with Lithium, but Not Lamotrigine, is Associated with Seizures: An Analysis of Online Psychedelic Experience Reports. Pharmacopsychiatry, 54, 240–245. DOI: 10.1055/a-1524-2794. Frumrannsókn á sjálfvöldum netfrásögnum; ekki tíðnimat.
- St John Ambulance. Recovery position. viðbragðsleysi og eðlileg öndun.
- NHS. What to do if someone has a seizure.
- Victoria Department of Health (2026). MDMA and other stimulants in hot environments.
- DanceSafe. MDMA. líkamleg áhætta og hættumerki.
- Skaðaminnkunarbókin. Íslensk upplýsingaveita í þróun; notuð sem frekari lesning, ekki sem meginheimild læknisfræðilegra fullyrðinga.
- Erowid. Psilocybin & Psilocin Dosage. Viðmið um hreint psilocybin um munn; grunnsíða uppfærð 2015. Skoðað 23. október 2026.
- Erowid. Psilocybin Mushroom Dosage. Gróf viðmið fyrir þurrkaða P. cubensis; grunnsíða uppfærð 2016. Skoðað 23. október 2026.
- Erowid. MDMA Dosage. Magn MDMA-HCl um munn; grunnsíða uppfærð 2020. Skoðað 23. október 2026.
- Erowid. Mescaline Dosage. Magn meskalín-HCl um munn; grunnsíða uppfærð 2015. Skoðað 23. október 2026.
- The Psychedelic Society. 5-MeO-DMT: Harm Reduction Advice. Viðmið fyrir hreint efni við innöndun; önnur form aðgreind. Skoðað 23. október 2026.
- Erowid. LSD Dosage. Míkrógrömm virks LSD um munn; grunnsíða uppfærð 2017. Skoðað 23. október 2026.
- TripSit. DMT factsheet. Magnviðmið fyrir skilvirka gufun; ekki fyrir MAO-hemilsblöndur. Skoðað 23. október 2026.
- Erowid. Ketamine Dosage. Hér eingöngu viðmið fyrir ketamín-HCl um nef; grunnsíða uppfærð 2022. Skoðað 23. október 2026.
- TripSit. 5-MeO-DMT factsheet. Samanburður sýnir að flokkun magnviðmiða er ekki samræmd milli heimilda. Skoðað 23. október 2026.
- Erowid. DMT Dosage. Samanburðarheimild um önnur magnviðmið; ekki notuð til að hækka TripSit-bilin. Skoðað 23. október 2026.
- KnowYourStuffNZ. Ketamine: Know your stuff. Skaðaminnkunarfræðsla sem endurbirtir magnviðmið Erowid. Skoðað 23. október 2026.
- CANMAT Task Force Report (2022). Serotonergic Psychedelic Treatments for Major Depressive Disorder. Tafla 3: upphaf og heildartími hugbreytandi áhrifa. Yfirlit; bil háð skammti og aðstæðum. Skoðað 23. október 2026.
- Alcohol and Drug Foundation. Psilocybin (magic mushrooms). Upphaf, tímalengd og einstaklingsmunur. Uppfært 2. október 2026. Skoðað 23. október 2026.
- The Psychedelic Society. Mescaline: Harm Reduction. Upphaf 45–90 mínútur og heildartími 8–14 klukkustundir í fræðsluyfirliti. Skoðað 23. október 2026.
- Erowid. DMT Effects. Tímaferill við reykingu/innöndun og eftiráhrif; grunnsíða uppfærð 2015. Skoðað 23. október 2026.
- Erowid. MDMA Effects. Tímaferill eftir inntöku um munn og eftiráhrif; grunnsíða uppfærð 2021. Skoðað 23. október 2026.
- Erowid. Ketamine Effects. Hér eingöngu tímar fyrir nefnotkun og eftiráhrif; grunnsíða uppfærð 2018. Skoðað 23. október 2026.
- Health Canada (2023). MDMA. Lýsir 3–6 klukkustunda bráðum áhrifum við inntöku um munn og mögulegum eftiráhrifum. Skoðað 24. október 2026.
- Crew. MDMA: Information guide on use, effects, safety and help. Vökvaviðmið eftir áreynslu og umhverfi, bls. 20. Skoðað 28. október 2026.
- Health Service Executive (HSE). MDMA (ecstasy). Vökvi, íþróttadrykkir og hætta á vatnseitrun. Skoðað 28. október 2026.
- Health Canada. Ketamine. Bráð eitrun, milliverkanir, fíkn og fráhvarf.
- European Medicines Agency (EMA). Spravato (esketamín). Lyfjaupplýsingar, áhætta og eftirlit við meðferð.
- National Cancer Institute (NCI). Handling Nicotine Withdrawal and Triggers When You Decide To Quit Tobacco. Einkenni nikótínfráhvarfs.
- U.S. Food and Drug Administration (FDA). Spilling the Beans: How Much Caffeine is Too Much?. Einstaklingsmunur, einkenni of mikillar koffínneyslu og koffín úr ólíkum vörum.
- World Health Organization (WHO) (2025). Opioid overdose. Áhættuþættir ofskömmtunar, meðal annars endurkoma til notkunar eftir hlé.
- Substance Abuse and Mental Health Services Administration (SAMHSA) (2021). Managing Chronic Pain in Adults With or in Recovery From Substance Use Disorders. Advisory. Minnkað þol eftir hlé og ofskömmtunarhætta, bls. 8.
- Health Canada. Cocaine and crack. Eitrun, heilsufarsáhætta, fíkn og fráhvarf.
- Health Canada. Methamphetamine. Bráð og langvinn áhrif, fíkn og fráhvarf.
- U.S. Food and Drug Administration (FDA) (2023). FDA updating warnings to improve safe use of prescription stimulants used to treat ADHD and other conditions. Ávísaðri lyfjameðferð, notkun utan fyrirmæla og áhættu lýst sérstaklega.
- Health Service Executive (HSE). Effects and dependency – G (GHB and GBL). Verkun GBL, eitrun, ávanabinding og fráhvarf.
- METTLER TOLEDO. Analytical balances. Skýringar framleiðanda á upplausn skjás, mælinákvæmni og lágmarksþyngd sem vigt getur mælt áreiðanlega.
Ritstjórnarleg yfirferð: .
Efni síðunnar er almenn fræðsla og kemur ekki í stað einstaklingsbundinnar heilbrigðisráðgjafar. Tenglar á aðrar vefsíður eru til frekari upplýsinga.
Upplýsingar um samtalsþjónustu eru á allirsattir.is.
Tengt efni
- Aðstoð eftir erfiða reynslu
Leiðir að hjálp og næstu skref ef líðan er erfið eftir reynslu. - Fyrir aðstandendur
Hvernig má veita stuðning, ræða saman og gæta eigin marka. - Ítarlegt öryggisyfirlit
Töflur um áhættu, magn og tímalengd, með heimildum og skýringum.