Forsíða / Rannsóknir og meðferð
Rannsóknir og meðferð
Hér er farið yfir rannsóknir á mögulegu meðferðargildi hugvíkkandi efna, helstu niðurstöður og það sem enn er óvíst. Byrjaðu á stutta yfirlitinu hér að neðan og veldu síðan það sem þú vilt lesa nánar um.
Efnisyfirlit
Rannsóknirnar í stuttu máli
Hér er stutt yfirlit yfir rannsóknir á hugvíkkandi efnum. Rannsóknirnar eru ólíkar og því er ekki hægt að nota yfirlitið til að raða efnunum eftir árangri eða öryggi. Veldu „Lesa nánar“ til að kynna þér niðurstöður og takmarkanir rannsóknanna.
Psilocybin
Þunglyndi og áfengisvandi: Sumar rannsóknir hafa sýnt bata, en niðurstöður eru ekki allar samhljóða. Í samanburðarrannsókn við þunglyndi reyndist psilocybin ekki marktækt betra en þunglyndislyfið escítalópram eftir sex vikur samkvæmt aðalmælikvarða rannsóknarinnar. Enn er óvíst hversu lengi mögulegur bati helst. [2] [3] [4] [5] Lesa nánar.
MDMA
Áfallastreituröskun: Í rannsókn dró meira úr einkennum hjá fólki sem fékk MDMA ásamt samtalsmeðferð en hjá þeim sem fengu lyfleysu og sömu samtalsmeðferð.
Bandaríska lyfjastofnunin FDA benti árið 2024 á veikleika í rannsóknargögnunum. Þátttakendur gátu oft áttað sig á hvaða meðferð þeir fengu, skráningu aukaverkana var ábótavant og gögnin gáfu ekki nægilega skýr svör um langtímaárangur. [6] [9] [10] Lesa nánar.
LSD
Kvíði: Í rannsókn á MM120, lyfjaformi af LSD, drógu hærri skammtar meira úr kvíðaeinkennum en lyfleysa. Þátttakendum var fylgt eftir í 12 vikur, en rannsóknin sýnir ekki hvort batinn haldist árum saman. Áberandi áhrif LSD geta líka gert þátttakendum kleift að átta sig á hvaða meðferð þeir fá, sem getur haft áhrif á niðurstöðurnar. [25] Lesa nánar.
Ketamín og esketamín
Þunglyndi: Rannsóknir hafa sýnt að ketamín og esketamín geta dregið hratt úr þunglyndiseinkennum. Meðferð með esketamíni getur falið í sér endurteknar lyfjagjafir. Árangur getur verið ólíkur eftir því hvaða lyfjaform er notað, hvernig lyfið er gefið og hvernig meðferðinni er háttað. [26] [27] Lesa nánar.
DMT (N,N-DMT)
Þunglyndi: Í lítilli rannsókn dró DMT meira úr þunglyndiseinkennum en lyfleysa til skamms tíma. Efnið var gefið í æð með faglegum stuðningi. Enn er óvíst hversu lengi batinn helst. Niðurstöðurnar eiga ekki sjálfkrafa við þegar DMT er tekið með öðrum hætti. [28] Lesa nánar.
Ayahuasca
Þunglyndi: Í lítilli rannsókn dró ayahuasca meira úr þunglyndiseinkennum en lyfleysa eftir eina viku. Notuð var tiltekin samsetning drykkjarins. Rannsóknin sýnir ekki hvort batinn haldist til lengri tíma eða hversu örugg notkun annarra blandna og notkun í seremóníum sé. [29] Lesa nánar.
5-MeO-DMT
Þunglyndi sem hefur ekki batnað við fyrri meðferð: Í rannsókn á GH001, lyfjaformi með tilbúnu 5-MeO-DMT, dró meira úr þunglyndiseinkennum en með lyfleysu eftir eina viku. Margir fengu endurtekna meðferð næstu mánuði. Niðurstöðurnar sýna því ekki að ein meðferð nægi til varanlegs bata. [23] Lesa nánar.
Meskalín
Skynjun og líðan: Rannsóknin sem hér er fjallað um kannaði áhrif meskalíns hjá heilbrigðum þátttakendum meðan efnið verkaði. Hún kannaði ekki hvort meskalín gagnist við meðferð geðraskana. [24] Lesa nánar.
Rannsóknarsamantektir: hvað segja gögnin í heild?
Með því að taka saman niðurstöður margra rannsókna má fá betri yfirsýn yfir það sem þær benda til. Hér eru helstu niðurstöður valinna rannsóknarsamantekta. Þú getur opnað „Nánar“ við hverja samantekt til að lesa um framkvæmd hennar og takmarkanir.
Þunglyndislyf: hvað sýnir stóra samantektin?
Þunglyndislyf geta dregið úr þunglyndiseinkennum. Í samantekt á rannsóknum á 21 þunglyndislyfi náðu fleiri að minnsta kosti helmingsminnkun einkenna með lyfjunum en með lyfleysu. [30]
Rannsóknirnar fjölluðu um skammtímameðferð, yfirleitt um átta vikur. Þær svara ekki því hversu lengi batinn helst og niðurstöðurnar eiga ekki sjálfkrafa við um þunglyndi sem hefur ekki svarað fyrri meðferðum. Einnig skiptir máli hvaða aukaverkanir fylgja meðferðinni.
Nánar: þunglyndislyf
Cipriani o.fl. (2018) tóku saman 522 slembirannsóknir með tæplega 117 þúsund þátttakendum. Þar var árangur 21 þunglyndislyfs borinn saman við lyfleysu eða önnur þunglyndislyf.
Samantektin gefur ekki eitt almennt batahlutfall sem á við um öll lyfin eða alla sjúklinga. [30]
MDMA og áfallastreita: lofandi, en óvíst
Samantekt rannsóknanna bendir til að MDMA ásamt samtalsmeðferð geti dregið meira úr einkennum áfallastreituröskunar en þær meðferðir sem notaðar voru til samanburðar. Höfundar meta vissu niðurstöðunnar þó litla. [31]
Áberandi áhrif MDMA geta gert þátttakendum og meðferðaraðilum kleift að átta sig á hvaða meðferð er veitt. Væntingar geta því haft áhrif á niðurstöðurnar. Enn er óvíst hversu vel árangurinn skilar sér utan rannsóknaraðstæðna. Samantektin ber MDMA-meðferð ekki beint saman við SSRI-lyf eða gagnreynda áfallameðferð.
Nánar: MDMA-samantekt
Sevchik o.fl. (2026) tóku saman sex slembirannsóknir með samtals 286 þátttakendum. Megingreiningin á breytingum á áfallastreitueinkennum byggði á gögnum frá 242 þeirra. Heimildaleit lauk 25. nóvember 2025.
Allar rannsóknirnar fylgdu meðferðarfyrirkomulagi MAPS, þar sem MDMA-gjöf var hluti af ferli með undirbúningi, samtalsmeðferð og úrvinnslu eftir á.
Höfundar mátu vissu niðurstaðnanna litla samkvæmt GRADE, kerfi sem metur hversu traustar rannsóknarniðurstöður eru. Því réðu meðal annars erfiðleikar við að halda meðferðinni leyndri fyrir þátttakendum og meðferðaraðilum, möguleg áhrif væntinga og óvissa um hvort sambærilegur árangur náist í almennri þjónustu. [31]
Af hverju skiptir samanburðarhópurinn máli?
Til að meta árangur meðferðar skiptir máli hversu mikill bati verður í samanburðarhópnum. Ef lítill bati verður þar getur munurinn milli hópanna orðið meiri, jafnvel þótt batinn hjá þeim sem fá meðferðina sé svipaður og í öðrum rannsóknum.
Í þessari samantekt mældist minni bati í samanburðarhópum psilocybin-rannsókna en í rannsóknum á SSRI-lyfjum eða esketamíni. Því geta einfaldar samanburðartölur úr þessum rannsóknum gefið villandi mynd af því hvaða meðferð skilar mestum árangri. [32]
Þetta var samanburður milli ólíkra rannsókna. Hann sýnir ekki einn og sér hvaða meðferð sé best eða hversu stóran þátt væntingar eiga í niðurstöðunum.
Nánar: samanburður
Hieronymus o.fl. (2025) tóku saman 17 slembirannsóknir: fjórar á psilocybin, ellefu á SSRI-lyfjum og tvær á esketamíni. Þeir báru saman breytingar á þunglyndiseinkennum í meðferðar- og samanburðarhópunum á fyrstu tveimur til sex vikum meðferðar.
Þetta var óbeinn samanburður milli rannsókna með ólíkum þátttakendum og rannsóknaraðstæðum. Niðurstöðurnar undirstrika því að skoða þarf bæði batann í meðferðarhópnum og samanburðarhópnum þegar árangur er metinn. [32]
Sjá töluleg dæmi og beina samanburði við hefðbundna meðferð. Beinn og óbeinn samanburður eru aðgreind í hugtakasafninu.
Nánar um rannsóknirnar
Hér geturðu lesið nánar um einstakar rannsóknir, takmarkanir þeirra og það sem vitað er um langtímaárangur.
Niðurstöður og takmarkanir
Langtímaárangur
Árangur þarf samhengi
Meðferðirnar eru ólíkar. Sumar rannsóknir kanna eina eða fáar lyfjagjafir, aðrar endurtekna meðferð. Umfang sálræns stuðnings og samtalsmeðferðar er líka mismunandi.
Skoða þarf rannsóknina í heild. Hverjir tóku þátt, við hvað var borið saman og hversu lengi var fylgst með? Einnig skiptir máli hvort þátttakendur fengu aðra meðferð á eftirfylgdartímanum.
Eftirfylgd er ekki lengd áhrifa. Þegar talað er um eftirfylgd í vikum eða mánuðum er átt við tímann sem fylgst var með líðan þátttakenda, ekki hversu lengi áhrif efnisins vörðu. Sjá nánar um upphaf áhrifa, megináhrif og eftiráhrif.
Samtal um það sem situr eftir
Á allirsattir.is geturðu kynnt þér samtalsþjónustu um undirbúning og úrvinnslu hugvíkkandi reynslu. Þar finnurðu nánari upplýsingar og getur bókað tíma.
Lestu áfram
Næsti kafli fjallar um sögu hugvíkkandi efna og stöðu þeirra í menningu og samfélagi.
Heimildir
- Davis o.fl. (2021). Effects of Psilocybin-Assisted Therapy on Major Depressive Disorder: A Randomized Clinical Trial. JAMA Psychiatry. DOI: 10.1001/jamapsychiatry.2020.3285.
- Goodwin o.fl. (2022). Single-Dose Psilocybin for a Treatment-Resistant Episode of Major Depression. The New England Journal of Medicine. DOI: 10.1056/nejmoa2206443.
- Bogenschutz o.fl. (2022). Percentage of Heavy Drinking Days Following Psilocybin-Assisted Psychotherapy vs Placebo in the Treatment of Adult Patients With Alcohol Use Disorder: A Randomized Clinical Trial. JAMA Psychiatry. DOI: 10.1001/jamapsychiatry.2022.2096.
- Carhart-Harris o.fl. (2021). Trial of Psilocybin versus Escitalopram for Depression. The New England Journal of Medicine. DOI: 10.1056/nejmoa2032994.
- Rieser o.fl. (2025). Psilocybin-assisted therapy for relapse prevention in alcohol use disorder: a phase 2 randomized clinical trial. EClinicalMedicine. DOI: 10.1016/j.eclinm.2025.103149.
- Mitchell o.fl. (2023). MDMA-assisted therapy for moderate to severe PTSD: a randomized, placebo-controlled phase 3 trial. Nature Medicine. DOI: 10.1038/s41591-023-02565-4.
- Mitchell o.fl. (2021). MDMA-assisted therapy for severe PTSD: a randomized, double-blind, placebo-controlled phase 3 study. Nature Medicine. DOI: 10.1038/s41591-021-01336-3.
- Oehen o.fl. (2013). A randomized, controlled pilot study of MDMA (± 3,4-Methylenedioxymethamphetamine)-assisted psychotherapy for treatment of resistant, chronic Post-Traumatic Stress Disorder (PTSD). Journal of Psychopharmacology. DOI: 10.1177/0269881112464827.
- FDA (8. ágúst 2024). Complete Response Letter, NDA 215455. Svarbréf um umsókn um markaðsleyfi (PDF).
- FDA (4. júní 2024). FDA Briefing Document: NDA 215455, Midomafetamine (MDMA). Matsgögn fyrir Psychopharmacologic Drugs Advisory Committee; MPLONG á bls. 29–34 (PDF).
- Gukasyan o.fl. (2022). Efficacy and safety of psilocybin-assisted treatment for major depressive disorder: Prospective 12-month follow-up. Journal of Psychopharmacology. DOI: 10.1177/02698811211073759.
- Mertens o.fl. (2026). Long-Term Efficacy of Psilocybin with Adjunct Psychotherapy in Treatment-Resistant Major Depression: 6- and 12-Month Naturalistic Follow-Up of a Phase 2b Trial. Psychotherapy and Psychosomatics. DOI: 10.1159/000552272.
- Yngwe o.fl. (2026). Short-Term and Late-Term Effects of Psilocybin on Symptoms in Major Depression: A Randomized Clinical Trial. JAMA Network Open. DOI: 10.1001/jamanetworkopen.2026.12589.
- Erritzoe o.fl. (2024). Effect of psilocybin versus escitalopram on depression symptom severity in patients with moderate-to-severe major depressive disorder: observational 6-month follow-up of a phase 2, double-blind, randomised, controlled trial. EClinicalMedicine. DOI: 10.1016/j.eclinm.2024.102799.
- Agin-Liebes o.fl. (2020). Long-term follow-up of psilocybin-assisted psychotherapy for psychiatric and existential distress in patients with life-threatening cancer. Journal of Psychopharmacology. DOI: 10.1177/0269881119897615.
- Mithoefer o.fl. (2013). Durability of improvement in post-traumatic stress disorder symptoms and absence of harmful effects or drug dependency after 3,4-methylenedioxymethamphetamine-assisted psychotherapy: a prospective long-term follow-up study. Journal of Psychopharmacology. DOI: 10.1177/0269881112456611.
- Jerome o.fl. (2024). Retraction Note: Long-term follow-up outcomes of MDMA-assisted psychotherapy for treatment of PTSD: a longitudinal pooled analysis of six phase 2 trials. Psychopharmacology. DOI: 10.1007/s00213-024-06665-y. Afturköllun greinar.
- Rosenblat o.fl. (2024). Psilocybin-assisted psychotherapy for treatment resistant depression: A randomized clinical trial evaluating repeated doses of psilocybin. Med. DOI: 10.1016/j.medj.2024.01.005.
- Halvorsen, Naudet og Cristea (2021). Challenges with benchmarking of MDMA-assisted psychotherapy. Nature Medicine. DOI: 10.1038/s41591-021-01525-0.
- Colcott o.fl. (2024). Side-effects of mdma-assisted psychotherapy: a systematic review and meta-analysis. Neuropsychopharmacology. DOI: 10.1038/s41386-024-01865-8.
- Cavanna o.fl. (2022). Microdosing with psilocybin mushrooms: a double-blind placebo-controlled study. Translational Psychiatry. DOI: 10.1038/s41398-022-02039-0.
- NCCIH / NIH. Psilocybin for Mental Health and Addiction: What You Need To Know.
- Cubała o.fl. (2026). GH001 vs Placebo in Patients With Treatment-Resistant Depression: A Randomized Clinical Trial. JAMA Psychiatry. DOI: 10.1001/jamapsychiatry.2026.0096.
- Ley o.fl. (2023). Comparative acute effects of mescaline, lysergic acid diethylamide, and psilocybin in a randomized, double-blind, placebo-controlled cross-over study in healthy participants. Neuropsychopharmacology. DOI: 10.1038/s41386-023-01607-2.
- Robison o.fl. (2025). Single Treatment With MM120 (Lysergide) in Generalized Anxiety Disorder: A Randomized Clinical Trial. JAMA. DOI: 10.1001/jama.2025.13481.
- Murrough o.fl. (2013). Antidepressant efficacy of ketamine in treatment-resistant major depression: a two-site randomized controlled trial. American Journal of Psychiatry. DOI: 10.1176/appi.ajp.2013.13030392.
- EMA. Spravato (esketamine). Viðurkennd notkun, rannsóknarniðurstöður og eftirlit í ESB. Skoðað 23. október 2026.
- Erritzoe o.fl. (2026). A short-acting psychedelic intervention for major depressive disorder: a phase IIa randomized placebo-controlled trial. Nature Medicine. DOI: 10.1038/s41591-025-04154-z.
- Palhano-Fontes o.fl. (2019). Rapid antidepressant effects of the psychedelic ayahuasca in treatment-resistant depression: a randomized placebo-controlled trial. Psychological Medicine. DOI: 10.1017/S0033291718001356.
- Cipriani o.fl. (2018). Comparative efficacy and acceptability of 21 antidepressant drugs for the acute treatment of adults with major depressive disorder. The Lancet. DOI: 10.1016/S0140-6736(17)32802-7.
- Sevchik o.fl. (2026). A living systematic review, meta-analysis, and open data resource of trials of MDMA-assisted therapy for PTSD. Neuropsychopharmacology. DOI: 10.1038/s41386-026-02575-z.
- Hieronymus o.fl. (2025). Control Group Outcomes in Trials of Psilocybin, SSRIs, or Esketamine for Depression: A Meta-Analysis. JAMA Network Open. DOI: 10.1001/jamanetworkopen.2025.24119.
Ritstjórnarleg yfirferð: .
Hér eru valdar rannsóknir og matsgögn sem umfjöllunin byggir á. Listinn er ekki tæmandi. Efnið er almenn fræðsla og kemur ekki í stað einstaklingsbundins mats eða heilbrigðisþjónustu.
Tengt efni
- Ítarlegar rannsóknir
Niðurstöður einstakra rannsókna og helstu takmarkanir þeirra. - Samanburður meðferða
Hvernig árangur meðferða er metinn og hvað má lesa úr samanburði. - Langtímaárangur og endurtekin meðferð
Hversu lengi bati helst og hvað rannsóknir segja um endurtekna meðferð.