Forsíða / Hugvíkkandi ferðalag
Hugvíkkandi ferðalag
Fræðsla um upplifun, lagaumhverfi, undirbúning og úrvinnslu. Um muninn á ferðalagi og meðferð, val á stuðningi og leiðir að aðstoð.
Á þessari síðu
Efnisyfirlit
Hvað er hugvíkkandi ferðalag?
„Hugvíkkandi ferðalag“ er hversdagslegt heiti á upplifun undir áhrifum hugvíkkandi og skyldra efna, til dæmis psilocybin eða MDMA. Tilfinningar, hugsun og skynjun geta breyst, en áhrifin eru ólík eftir efnum. Psilocybin telst til klassískra hugvíkkandi efna. MDMA er annars eðlis og getur meðal annars aukið tilfinningu fyrir nánd og tengslum við aðra. [1] [2] [4]
Orðið „ferðalag“ er ekki læknisfræðilegt heiti og segir eitt og sér ekkert um öryggi eða árangur.
Sumir lýsa undrun, nánd eða nýjum sjónarhornum. Aðrir upplifa ótta, ringulreið eða vanlíðan. Upplifunin getur líka verið blanda af þessu og er ekki auðvelt að sjá hana fyrir. Áhrif eru meðal annars háð efninu, magni, heilsu, líðan, væntingum og aðstæðum. [1]
Ferðalag, athöfn og lagaumhverfi
Í óformlegri umræðu getur „hugvíkkandi ferðalag“ einnig átt við athöfn með hugvíkkandi eða skyldum efnum sem fer fram utan formlegs heilbrigðiskerfis. Slík athöfn er ekki sjálfkrafa viðurkennd heilbrigðismeðferð, jafnvel þótt hún sé kynnt í lækningaskyni.
Á Íslandi eru varsla og afhending efna á borð við psilocybin og MDMA almennt óheimilar. Lög og reglugerðir gera þó ráð fyrir afmörkuðum undanþágum og leyfum. Heitið „ferðalag“, „athöfn“ eða „meðferð“ breytir ekki lagalegri stöðu þess sem fram fer. [5] [6]
Þrátt fyrir bann fara margir þessa leið og nota efnin utan leyfðs meðferðar- eða rannsóknarramma. Því er mikilvægt að fólk hafi aðgang að vönduðum upplýsingum og geti kynnt sér vel hvað felst í fyrirhugaðri athöfn eða þeirri þjónustu sem er kynnt sem meðferð. Markmið slíkrar fræðslu er að draga úr óþarfa skaða.
Hver leiðir athöfnina?
Bakgrunnur þeirra sem bjóða slíkar athafnir eða meðferð er mjög ólíkur. Sumir eru áhugamenn án formlegrar heilbrigðismenntunar. Aðrir hafa töluverða reynslu og menntun, til dæmis á sviði sálfræði, heilbrigðisþjónustu eða samtalsmeðferðar. Persónuleg reynsla af hugvíkkandi efnum, námskeið í að leiða athafnir og formleg heilbrigðismenntun eru ólíkir hlutir. Ekki ætti að gera ráð fyrir að allir sem nota heitið „meðferðaraðili“ hafi sambærilega þjálfun eða starfi undir sambærilegu eftirliti.
Áður en ákvörðun er tekin er því ástæða til að kanna:
- Menntun, reynslu og eftir atvikum starfsleyfi viðkomandi.
- Hvernig heilsufar og lyfjanotkun eru metin.
- Hvernig persónuleg mörk og samþykki eru tryggð.
- Hvernig brugðist er við ef eitthvað fer úrskeiðis.
- Hvaða stuðningur og eftirfylgd standa til boða eftir athöfnina.
Menntun og reynsla geta skipt máli en tryggja ekki ein og sér öryggi eða árangur. Upplýsingar og undirbúningur gera heldur ekki notkun áhættulausa eða óheimila athöfn löglega.
Er hugvíkkandi ferðalag það sama og hugvíkkandi meðferð?
Í rannsóknum á meðferð með hugvíkkandi efnum er gjöfin hluti af skipulögðu ferli. Þar koma meðal annars við sögu val þátttakenda, heilsufarsmat, undirbúningur, eftirlit og eftirfylgd. Þessar aðstæður skipta máli þegar niðurstöður rannsóknanna eru metnar. Ekki er hægt að gera ráð fyrir sama öryggi eða árangri utan þeirra. [2]
Undirbúningur snýst líka um að meta áhættu
Í fræðslu er oft talað um hugarástand og umhverfi, eða „set and setting“. Hugarástand nær meðal annars yfir líðan og væntingar. Umhverfið felur í sér aðstæður, fólkið í kring og þann stuðning sem stendur til boða. Gott utanumhald getur ekki útilokað áhættu. [1] [2]
Heilsufar, saga um geðræn veikindi og lyfjanotkun þurfa sérstaka athygli. Leiðbeiningar fyrir rannsóknir leggja áherslu á faglegt mat á þessum þáttum áður en þátttaka kemur til greina. Slíkt mat verður ekki leyst af hólmi með almennum gátlista á netinu. [2]
Hvað er úrvinnsla eftir hugvíkkandi ferðalag?
Úrvinnsla, einnig kölluð samþætting eða „integration“, felst í að skoða reynsluna eftir á og tengja hana við daglegt líf. Hvað vakti hún? Hvað er enn óljóst? Er eitthvað sem viðkomandi vill vinna með áfram? [3]
Úrvinnsla getur falist í samtali, skrifum eða íhugun og því að skoða hvernig reynslan tengist samskiptum og venjum. Hún þarf ekki að leiða til einnar endanlegrar túlkunar. Hugtakið nær yfir ólíkar nálganir og rannsóknir á því hvaða aðferðir hjálpa hverjum eru enn takmarkaðar. Ekki er hægt að lofa tilteknum árangri af úrvinnslu. [3]
Þegar reynslan er erfið
Psilocybin getur meðal annars valdið miklum ótta, kvíða og ringulreið og haft neikvæð áhrif á svefn og líðan. Eftir MDMA-notkun geta líka komið fram depurð, kvíði og svefnvandamál. Ekki ætti að fresta heilbrigðisaðstoð vegna vanlíðanar í von um að hún sé nauðsynlegur hluti reynslunnar. [1] [4]
Ef þér líður illa eftir ferðalag er hér sérstök síða um hættumerki og næstu skref
Hugvíkkandi er fræðsluvefur. Hér er hægt að kynna sér efni, rannsóknir og áhættu og finna leiðir að frekari upplýsingum og stuðningi.
Heimildir
[1] NCCIH. Psilocybin for Mental Health and Addiction: What You Need To Know.
[2] Johnson, Richards og Griffiths (2008). Human hallucinogen research: guidelines for safety.
[5] Lög um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, einkum 2. gr.
[6] Reglugerð nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni.