Forsíða / Heimildir og ítarefni

Heimildir og ítarefni

Hér finnurðu heimildaskrár eftir viðfangsefnum og tengla á frekara lesefni. Hér er einnig útskýrt hvernig heimildir eru valdar og hver ber ritstjórnarlega ábyrgð á efninu.

Viðtöl, fyrirlestrar, bækur og myndir eru á sérstakri síðu. Hugtakasafnið skýrir orð og rannsóknarhugtök, en á síðunni Rannsóknir og meðferð er yfirlit yfir helstu rannsóknarniðurstöður.

Opin bók, tvær lokaðar bækur og kvikmyndaspóla í myndskreyttu íslensku landslagi.

Heimildaskrár eftir viðfangsefnum

Veldu viðfangsefni til að opna heimildaskrá viðkomandi síðu. Númeraðar tilvísanir í textanum vísa í heimildaskrá þeirrar síðu. Ítarlega öryggisyfirlitið og síðan Öryggi og skaðaminnkun nota sameiginlega heimildaskrá.

Hvernig vel ég heimild?

  • Viltu fá yfirsýn? Byrjaðu á aðgengilegri grunnfræðslu, til dæmis yfirliti NCCIH um psilocybin, rannsóknir og áhættu.
  • Viltu meta fullyrðingu um meðferð? Skoðaðu rannsóknina að baki henni: Hverjir tóku þátt? Við hvað var borið saman? Hvaða ávinningur og aukaverkanir komu fram? Hversu lengi var fólki fylgt eftir? Leiðbeiningar um mat rannsókna.
  • Viltu kynnast reynslu og sjónarmiðum? Viðtöl, bækur og persónulegar frásagnir geta veitt innsýn. Þau sýna þó ekki ein og sér hversu algengur ávinningur eða skaði er.
  • Hver stendur að efninu? Athugaðu hver skrifar, hver fjármagnar og hvort tengsl eða hagsmunir geti haft áhrif á framsetninguna. Heimildaval og tengsl þessa vefs.

Grunnfræðsla og rannsóknarsetur

GRUNNFRÆÐSLA · NIDA / NIH

Hugvíkkandi efni og áhrif þeirra

Aðgengilegt yfirlit um helstu efnaflokka, áhrif á huga og líkama, mögulega notkun í meðferð og áhættu.

FRÆÐSLA · JOHNS HOPKINS · 2025

Möguleikar, áhætta og upplýst samþykki

Umfjöllun um hvernig miðla má upplýsingum um mögulegan ávinning og áhættu, styðja upplýst samþykki og bæta skráningu óæskilegra áhrifa.

RANNSÓKNARSETUR · IMPERIAL COLLEGE LONDON

Rannsóknir á hugvíkkandi efnum

Kynning á rannsóknarverkefnum, starfsfólki og fræðsluefni rannsóknarseturs Imperial um hugvíkkandi efni og geðheilbrigði.

Valdar heimildir, skoðaðar í október 2026. Þetta er inngangur að efninu, ekki tæmandi yfirlit yfir rannsóknir.

Heimildirnar eiga að vera rekjanlegar

Um vefinn og ritstjóra

Markmið þessa vefs er að auðvelda fólki að finna upplýsingar á íslensku um hugvíkkandi efni. Hér er leitast við að gera skýran greinarmun á því sem við vitum, því sem enn er óvíst og því sem þarfnast frekari rannsókna. Jafnframt er bent á heimildir fyrir þau sem vilja lesa meira.

Mikil áhersla er lögð á fordómalausa fræðslu og skaðaminnkun. Með skaðaminnkun á ég við að veita fólki upplýsingar og stuðning sem geta dregið úr hættu á skaða, hvort sem það ákveður að nota þessi efni eða ekki. Þar skiptir máli að fjalla af hreinskilni um áhættu, aðstæður og stuðning og auðvelda fólki að leita sér hjálpar án þess að mæta fordæmingu.

Fræðsla um áhættu er ekki hvatning til neyslu. Fólk þarf að hafa aðgang að upplýsingum til að geta tekið upplýstar ákvarðanir.

Áhugi minn á þessum efnum á sér bæði persónulegar og faglegar rætur.

Árið 2016 ákvað ég að prófa psilocybin, virka efnið í hugvíkkandi sveppum, í von um að finna leið út úr djúpu þunglyndi sem hafði fylgt mér áratugum saman. Þá hafði kvíðaröskun einnig bæst við. Ég hafði áður prófað fjölmörg hefðbundin lyf og sálfræðimeðferðir án þess að ná þeim bata sem ég vonaðist eftir.

Ég hafði ekki aðgang að faglegri leiðsögn og fór því þessa leið á eigin spýtur. Þótt reynsla mín hafi verið góð mæli ég ekki með því að fólk fylgi því fordæmi.

Til að gera langa sögu stutta upplifði ég nær algjöran bata frá þunglyndinu, þótt kvíðinn væri enn til staðar. Reynslan sjálf var mér líka afar dýrmæt. Hún hafði djúpstæð áhrif á sýn mína á sjálfan mig og tilveruna, óháð batanum. Þetta er mín persónulega reynsla og segir ekki til um hvernig öðrum muni farnast.

Í kjölfarið ákvað ég að afla mér eins mikillar þekkingar á hugvíkkandi efnum og ég gæti. Ég lauk meðal annars námi í hugvíkkandi meðferð við Integrative Psychiatry Institute og sótti ítarlegt námskeið á vegum MAPS um meðferð með MDMA. Það námskeið var ætlað heilbrigðisstarfsfólki, fór fram hér á landi og ég tók virkan þátt í að skipuleggja það.

Mér finnst rétt að þessi bakgrunnur sé lesendum ljós. Ég hef trú á því að hugvíkkandi efni geti gagnast við viðeigandi aðstæður, með vönduðum undirbúningi, faglegum stuðningi og eftirfylgd. Ég er jafnframt talsmaður lögleiðingar þeirra innan ábyrgs regluverks.

Um leið legg ég áherslu á vísindalega og gagnrýna hugsun. Eigin reynsla mín má ekki ráða því hvaða niðurstöður fá hér rými. Á vefnum er því fjallað um bæði jákvæðar og neikvæðar niðurstöður, mögulegan ávinning, áhættu og takmarkanir þekkingar okkar. Markmiðið er að styðja upplýsta umræðu, varfærni og ábyrgð.

Efni vefsins er almenn fræðsla. Það kemur ekki í stað einstaklingsbundins mats, ráðgjafar eða heilbrigðisþjónustu.

Sigurður Hólm Gunnarsson með Rick Doblin á ráðstefnu um hugvíkkandi efni á Íslandi.

Sigurður Hólm Gunnarsson með Rick Doblin á ráðstefnu um hugvíkkandi efni á Íslandi, 13. janúar 2023.

© Sigurður Hólm Gunnarsson.

Sigurður Hólm Gunnarsson með Marcela Ot’alora G. og Bruce Poulter á námskeiði á Íslandi.

Sigurður Hólm Gunnarsson með Marcela Ot’alora G. og Bruce Poulter á námskeiði um meðferð með hugvíkkandi efnum á Íslandi, 12. mars 2024.

© Sigurður Hólm Gunnarsson.

Tengsl við félagið Hugvíkkandi

Þessi vefur er sjálfstæður og er ekki á vegum Hugvíkkandi – Samtaka áhugafólks um hugvíkkandi efni, sem halda úti vefnum hugvikkandi.org. Ég var stofnfélagi og fyrsti formaður þess góða félags en sit ekki lengur í stjórn þess.

Efnisval og umfjöllun hér eru því alfarið á mínum forsendum og á mína ábyrgð. Skoðanir sem ég set hér fram endurspegla ekki endilega afstöðu samtakanna.

Sigurður Hólm Gunnarsson

Ábyrgð og þjónustutengsl

Umsjón og ritstjórnarleg ábyrgð: Sigurður Hólm Gunnarsson. Ég veiti einnig samtalsþjónustu hjá Allir sáttir, sem vísað er til á vefnum.

Hvernig eru heimildir valdar?

Áhersla er á frumrannsóknir, opinber matsgögn og fræðslu frá heilbrigðisstofnunum. Fjallað er um ávinning, áhættu og óvissu, hvort sem niðurstöður eru jákvæðar, neikvæðar eða óljósar. Heimildavalið er þó ekki tæmandi, kerfisbundin samantekt á öllum rannsóknum.

Viðtöl, persónulegar frásagnir og ritdómar veita innsýn í reynslu og sjónarmið. Þau eru ekki notuð ein og sér til að staðfesta virkni meðferðar. Tengsl heimildarmanna við rannsóknir, hagsmunasamtök eða þjónustu eru tilgreind þar sem þau skipta máli.

Ritstjórnarleg yfirferð: .

Dagsetningin vísar til yfirferðar á efnisvali og framsetningu síðunnar. Hún merkir ekki að allar heimildir hafi verið sannreyndar að nýju þann dag.

Ábending eða leiðrétting? Sendu ritstjórn ábendingu með tengli á viðkomandi kafla og heimild ef hún liggur fyrir.

Samtal um það sem situr eftir

Á allirsattir.is geturðu kynnt þér samtalsþjónustu um undirbúning og úrvinnslu hugvíkkandi reynslu. Þar finnurðu nánari upplýsingar og getur bókað tíma.

Tengt efni

  • Viðtöl, bækur og myndir
    Viðtöl og fyrirlestrar, bækur og heimildarmyndir til að kynna sér efnið nánar.
  • Rannsóknir og meðferð
    Helstu rannsóknarniðurstöður, takmarkanir þeirra og möguleg notkun í meðferð.
  • Hugtakasafn
    Skýringar á hugtökum um hugvíkkandi efni, upplifun og rannsóknir.

Persónuverndarstillingar

Nauðsynleg geymsla í vafranum vistar val þitt. Ytri myndspilarar frá YouTube eru óvirkir þar til þú leyfir þá.