Hugvíkkandi samtal
Félagið Hugvíkkandi er flutt á lénið hugvikkandi.org
Ef þú ert að leita eftir fræðslu og undirbúningi fyrir hugvíkkandi ferðalag í meðferðarskyni bendum við á slíka þjónustu hjá ALLIR SÁTTIR.
Notkun hugvíkkandi efna í meðferðartilgangi hefur mikið verið til umræðu undanfarin ár enda hafa rannsóknir bent til þess að fagleg meðferð með slíkum efnum geti hjálpað fólki sem þjáist meðal annars af meðferðarþráu þunglyndi, áfallastreitu og kvíða.
Þrátt fyrir að notkun þessara efna sé enn ólögleg hér á landi og því ekki mælt með notkun þeirra hér þá er það staðreynd að margir hafa notað eða ætla sér að nota þessi efni á eigin vegum. Til dæmis víða erlendis þar sem notkun er leyfileg.
Mikilvægt er að fólk sem ætlar sér að fara þessa leið geti leitað til fagaðila til að undirbúa ferðalagið og ekki síður til að fá aðstoð við að vinna úr reynslunni í kjölfar notkunar. Enda hafa rannsóknir eindregið bent til þess að efnin sem slík séu ekki töfralausn heldur gagnlegt hjálpartæki í meðferð með reyndum fagaðilum.
Í hugvíkkandi samtölum er farið yfir hvernig sé best að undirbúa sig fyrir að nota hugvíkkandi efni. Hvað ber að hafa í huga og hvað ber að varst. Ef viðkomandi hefur þegar notað hugvíkkandi efni er boðið upp á samtöl um hvernig best sé að vinna úr reynslunni.
Sigurður Hólm Gunnarsson, ráðgjafi hjá ALLIR SÁTTIR.